Þátttökugjald

  • 3 km Ghost hringur2.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir3,2 km
  • Dagsetning31. október 2026

Brooks Ghost hlaupið er👻draugalegt fjölskylduhlaup í Grafarvogi!👻og fer fram laugardaginn 31. október kl. 16:30.

Þetta er skemmtilegt fjölskylduhlaup þar sem engin tímataka er í gangi — öll eru hvött til að mæta í draugalegum búningum og passa sig á draugalegu stígunum á leiðinni!

Hlaupin er um 3 km leið í Grafarvoginum og rás- og endamark er á göngustígnum fyrir neðan Grafarvogskirkju.

Þú getur skoðað leiðina neðst á þessari síðu eða á Strava.

Þátttökugjald og skráning

Miðaverð er aðeins 2.000 kr.

Allir velkomnir bæði börn og fullorðnir. Börn 12 ára og yngri verða að vera í fylgd með fullorðnum.

Allir þátttakendur fá lítinn og draugalegan gjafapoka sem sóttur er í Fætur Toga dagana 26. til 30. október milli 10-18.

Frábærir bakhjarlar

🍫 Nói Siríus gefur draugalegt góðgæti.
🎈 Partyland gefur hræðilega glaðninga.
🥤 Flórídana og Mix passar að enginn fari þyrstur heim!
👟 Brooks á Íslandi

Brooks á Íslandi veitir 30% afslátt af Ghost hlaupaskóm á öllum á eftirfarandi sölustöðum:

  • Fætur Toga: Höfðabakka 3, 110 Reykjavík
  • Hlaupár: Fákafen 11, 108 Reykjavík
  • Ellingsen: Fiskislóð 1, 101 Reykjavík og Glerártorgi, 600 Akureyri
  • Göngugreining: Lágmúla 4, Reykjavík
  • Útilíf: Kringlunni, 104 Reykjavík
  • Vaskur: Sólvangi 5, 700 Egilsstöðum
  • Súnbúðin: Hafnarbraut 6, 740 Neskaupstað
  • Veiðiflugan: Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði
  • Álnavörubúðin: Larsenstræti 2, 800 Selfossi

Mættu í þínum óhuggulegasta búningi og hlauptu með okkur! 🦇🕸️