Þátttökugjald

  • 3,5 km2.500 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir3,5 km
  • Dagsetning13. ágúst 2022
Myndasafn úr hlaupinu

Drullu- og hindrunarhlaup Krónunnar er hluti af Íþróttaveislu UMFÍ og 100 ára afmæli UMSK. Drulluskemmtilegt hlaup þar sem fjölskyldan vinnur saman að því að komast í mark í skítugasta hlaupi ársins í Mosfellsbæ.

Viðburðurinn er fyrir alla fjölskylduna og eða einstaklinga þar sem tíminn skiptir ekki máli heldur að komast í gegnum allar hindranirnar á leiðinni. Allir krakkar 8 ára og eldri ættu að getað klárað brautina. Áhersla er lögð á skemmtilega hreyfingu, gleði og samvinnu.

Vegalengdir og tímasetningar

Hlaupið fer fram laugardaginn 13. ágúst kl. 11 við Íþróttamiðstöðina Varmá Mosfellsbæ.

Hlaupið er 3,5 km hindrunarhlaup og inniheldur 21 hindrun.

Hvernig fer viðburðurinn fram?

Hlaupaleiðin er drulluskemmtileg og krefjandi en hringurinn er 3,5 km langur með fjölda hindrana sem þarf að yfirstíga. Fjölskyldur, vinir og vinnustaðahópar hlaupa saman og hjálpast að við að komast í gegnum hindranirnar og leysa saman þrautirnar. Hlaupaleiðin er skemmtileg og krefjandi en þó eiga allir, 8 ára og eldri, að komast í gegnum hana með aðstoð foreldra og/eða forráðamanna.
Ræst verður út í hópum, með fimm mínútna millibili, byrjað verður að ræsa út kl 11:00. Hver einstaklingur mun fá úthlutuðum rástíma.
Rás- og endamark er staðsett við Íþróttahúsið við Varmá og þar mun ríkja partýstemning frá því að hlaupið hefst og þar til því er lokið. Þar verður hægt að hvetja keppendur áfram og njóta samverustundar með fjölskyldum og vinum.

Skráning og verðlaun

Þátttökugjald er eftirfarandi:

  • Einstaklingsskráning: 2.500 kr fyrir hvern þátttakanda
  • Hópskráning (4 í hóp): 6.000 kr fyrir hvern 4. manna hóp. Notið kóðann DRULLUHOPUR í reitinn "Afsláttarkóði" þegar þið skráið ALLAN hópinn í einu.

Skráning er opin til miðnættis föstudaginn 12. ágúst, en hámarksfjöldi þátttakenda er 400. Skráningu verður lokað þegar þeim fjölda er náð.

Afhending gagna er við upphaf hlaupsins við Varmársvöll í Mosfellsbæ.

Umsjón

Ungmennafélagið Afturelding, frjálsíþróttadeild ásamt UMSK.