Um hlaupið

  • Vegalengdir1 km, 2,5 km, 5 km, 10 km
  • Dagsetning4. júní 2026

Eyfahlaupið er hlaup í anda gleði, samveru og jákvæðni þar sem öll geta tekið þátt, hvort sem markmiðið er að njóta hreyfingarinnar eða keppa við sjálfan sig og aðra. Hlaupið er nefnt í höfuðið á Sveini Eyjólfi Tryggvasyni frá Lambavatni, oftast kallaður Eyfi, sem var þekktur fyrir brosmildi, hjálpsemi og óþrjótandi jákvæðni, gildi sem við viljum að endurspeglist í hverju skrefi þátttakenda. Eyfi var hlaupari af guðs náð. Hvort sem það var á hlaupabrautinni á Völuvelli, í sveitinni á Rauðasandi eða í vinnunni. Þá mátti sjá hann spretta úr spori. Til gamans má geta að Eyfi á enn héraðsmet í bæði hálfu og heilu maraþoni 17 ára og eldri. Boðið er upp á fjölbreyttar vegalengdir sem henta öllum aldurshópum og getu. Fyrir þá sem vilja njóta án tímatöku er skemmtiskokk í boði, en fyrir keppnisfólk eru tímatökulengdir þar sem hægt er að setja sér markmið og takast á við áskorun. Eyfahlaupið er samstarfsverkefni Sjómannadagsráðs á Patreksfirði, Héraðssambandsins Hrafna-Flóka og HHF íþróttafélags.

Hlaupaleiðir og vegalengdir

2,5 km, 5 km og 10 km fara sömu leið:

  • 2,5 km: einn hringur, án tímatöku
  • 5 km: tveir hringir, með tímatöku
  • 10 km: fjórir hringir, með tímatöku

Start og mark er fyrir neðan Íþróttahúsið Bröttuhlíð á Patreksfirði. Ræst er við Bröttuhlíð, hlaupið niður að lögreglustöð, þar er beygt niður til hægri og hlaupið eftir Strandgötu í átt að Vatneyri. Við gatnamótin er beygt til vinstri inn á Aðalstræti og hlaupið að Vatneyrarbúð. Þar er snúið við og hlaupið aftur upp Aðalstræti að Íþróttahúsinu Bröttuhlíð.

1 km skemmtiskokk hefst einnig fyrir neðan Íþróttahúsið Bröttuhlíð. Hlaupið er að Aðalstræti 83, þar verður merki með HHF fána, þaðan er snúið við og hlaupið sömu leið til baka. Skemmtiskokkið 1 km og 2,5 km hentar vel byrjendum, fjölskyldum og þeim sem vilja taka þátt á eigin forsendum. Lengri vegalengdirnar eru fyrir þá sem vilja keppa eða ná sínum besta árangri.

Tímasetning

Hlaupið fer fram fimmtudaginn 4. júní og verður einn af upphafsviðburðum Sjómannadagshelgarinnar á Patreksfirði.

  • 10 km ræst kl. 16:50
  • 5 km ræst kl. 17:10
  • Skemmtiskokk ræst kl. 17:20

Þátttakendur eru hvattir til að mæta tímanlega og njóta stemningarinnar fyrir hlaup.

Skráning og þátttökugjald

Skemmtiskokk (1 km og 2,5 km) er frítt en þar sem er tímataka í 5 km og 10 km er eftirfarandi skráningargjald:

  • 1.500 kr. fyrir 16 ára og yngri
  • 3.000 kr. fyrir 17 ára og eldri

Hægt er að kaupa Eyfahlaupsbol til miðnættis 14. maí

  • 5.500 kr. 16 ára og yngri
  • 6.500 kr. 17 ára og eldri

Eftir miðnætti 14. maí er ekki hægt að kaupa bol, en enn er hægt að skrá sig í hlaupið. Skráningu lýkur á hlaupadegi 4. júní kl 12:00.

Verðlaun

Allir þátttakendur fá þátttökuverðlaun að hlaupi loknu. Auk þess verða veitt verðlaun í 5 km og 10 km í kvk og kk flokki, fyrir 1.–3. sæti í eftirfarandi aldursflokkum:

  • 11 ára og yngri
  • 12-16 ára
  • 17 ára og eldri
Andi hlaupsins

Eyfahlaupið snýst ekki aðeins um tíma og árangur, heldur líka um upplifun, gleði og samveru. Við hvetjum alla til að taka þátt á sínum forsendum og muna að brosa í hverju skrefi eins og Eyfi gerði.

Nánari upplýsingar

Ásgeir Sveinsson, sími: 896-2019, netfang: hhf.framkvaemdastjori@gmail.com