Um hlaupið

  • Vegalengdir28 km
  • Dagsetning8. ágúst 2026

5VH Trail Run (Fimmvörðuhálshlaup Náttúruhlaupa) verður haldið laugardaginn 8. ágúst 2026. Hlaupið verður um Fimmvörðuháls, frá Skógum að Volcano Huts í Húsadal, 28 km.

Tímasetning

Keppnin hefst kl. 9:00, laugardaginn 8. ágúst.

Skráning

Skráning á netskraning.is

Skráningargjöld verða ekki endurgreidd en hægt að gera nafnabreytingar til 31. júlí 2026. Skráningu lýkur 31. júlí eða þegar hlaupið er orðið fullt.

Innifalið í skráningu

  • Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
  • Drykkjarstöðvar við Baldvinsskála (13 km), Strákagil (23 km) og Volcano Huts. Vatn, íþróttadrykkur, bananar, súkkulaði og Nääk vörur
  • Sturta og salernisaðstaða að hlaupi loknu í Volcano Huts
  • Máltíð í Volcano Huts að hlaupinu loknu
  • Flutningur á farangri frá Skógum í Volcano Huts
  • Sjúkragæsla í Volcano Huts

Hlaupaleið og vegalengd

Hlaupið er 28 km og byrjar við Skóga og endar í Volcano Huts Húsadal.

Tímamörk og hámarksfjöldi

7 klst. Klára þarf hlaupið fyrir kl. 16:00.

Verðlaun

Verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki og fyrsta sæti í aldurflokki.

Nánari upplýsingar

Vefsíða hlaupsins og Facebook síða hlaupsins.

Skipuleggjendur keppninnar: Náttúruhlaup og Arctic Running (netfang: 5vh@natturuhlaup.is)