Fjarðarhlaupið verður haldið laugardaginn 15. ágúst kl 10:00 á Ólafsfirði.
Eins og venja er með Fjarðargönguna þá verður fyrst og fremst hrikalega gaman hjá okkur í Fjarðarhlaupinu! Flott umgjörð, tónlist, úrdráttarveðlaun, veitingar eftir keppni, allir fá þátttökuverðlaun en fyrst og fremst höfum við gaman!

Vegalengdir og skráning
Hægt verður að velja um nokkrar vegalengdir, barnahlaup (500m, 1000m, 1500m), 5 km eða 10 km götuhlaup (skemmtiskokk), 12 km, 18 km eða 32 km utanvegahlaup.
- Barnahlaup (500m, 1000m, 1500m) fyrir 10 ára og yngri, 1.000 kr
- Gönguferð með leiðsögn, 5.000 kr.
- 5 km/10 km, skemmtiflokkur fyrir alla, þátttakandi ræður vegalengd, 4.000 kr.
- 12 km, utanvegahlaup 12 ára og eldri, 5.000 kr.
- 18 km, fjallahlaup 12 ára og eldri, 8.000 kr (innifalinn akstur í start frá Ólafsfirði)
- 32 km, fjallahlaup 17 ára og eldri, 12.000 kr (innifalinn akstur í start frá Ólafsfirði)
Leiðarlýsing
Barnahlaup
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar. Hlaupið ætlað 5 ára og yngri, 6-8 ára og 9-10 ára.
Gönguferð
Gönguferð undir leiðsögn Maríu Bjarney Leifsdóttur, tilvalin valkostur fyrir göngufólk eða þá sem treysta sér ekki til að hlaupa meiri hluta leiðarinnar um Héðinsfjörð - Rauðskörð - Kleifar Ólafsfirði.
5 km/10 km götuhlaup
Ræst er í miðbæ Ólafsfjarðar og hlaupinn 5 km eða 10 km hringur á götum og stígum. Hlaup sem hentar öllum.
12 km utanvegahlaup
Ræst er frá Kleifum í Ólafsfirði og hlaupið sem leið liggur inn Syðri Árdal. Hlaupið er inn fyirr "hóla" í Syðriárdal, þar farið yfir ánna og hlaupið niður aftur að Kleifum. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls rúmir 12 km. Hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eru að byrja í utanvegahlaupum, flott áskorun!
- Heildarhækkun: 370m
- Drykkjarstöðvar: 0
18 km fjallahlaup
Ræst er frá Héðinsfjarðargöngum og hlaupið sem leið liggur að Víkurdal, hlaupið inn dalinn og yfir Rauðskörð (600m) og niður Ytri-Árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls rúmlega 18 km löng.
- Hlaupið er fyrir 12 ára og eldri
- Heildarhækkun: 656m
- Drykkjarstöðvar: 1
- ITRA erfiðleikastig: 1
- Relive útgáfa af leiðinni Héðinsfjörður / Ólafsfjörður
32 km fjallahlaup
Ræst verður frá Sigló Hótel og hlaupið sem leið liggur inn Hólsdal í Siglufirði og upp í Hólsskarð. Þar er stefnan tekin niður Ámárdal, niður í Héðinsfjörð að Héðinsfjarðargöngum. Þá er stefnan sett á Víkurdal yfir Rauðskörð og niður Ytri-árdal að Kleifum í Ólafsfirði. Endamark er í miðbæ Ólafsfjarðar og er leiðin alls um 32 km löng. Farið yfir tvo fjallgarða sem báðir eru í um 600 m hæð yfir sjó.
- Hlaupið er fyrir 17 ára og eldri
- Heildarhækkun: 1.291m
- Drykkjarstöðvar: 2
- ITRA erfiðleikastig: 2
- Relive útgáfa af leiðinni Siglufjörður / Héðinsfjörður
- Relive útgáfa af leiðinni Héðinsfjörður / Ólafsfjörður
Dagskrá fyrir laugardaginn 15. ágúst
32 km Siglufjörður - Ólafsfjörður
- Kl. 09:00 Afhending gagna við Sigló Hótel
- Kl. 10:00 Ræst út frá Sigló Hótel
- Leiðin er merkt alla leið nema fyrstu km sem eru á malbiki og svo góðum slóða.
- Drykkjarstöð er í Héðinsfirði og önnur eftir Rauðskörð í Ytriárdal. Við bjóðum upp á vatn, Leppin, Klaka, súkkulaðirúsínur og banana.
- Álteppi, flauta og hlaðinn sími skilyrði!
- Tímamörk í drykkjarstöð Héðinsfirði 2 klst og 20 min.
18 km Héðinsfjörður - Ólafsfjörður
- Kl. 10:00 Afhending gagna í Héðinsfirði
- Kl. 11:00 Ræst út í Héðinsfirði.
- Leiðin er merkt alla leið.
- Drykkjarstöð eftir Rauðskörð í Ytriárdal. Við bjóðum upp á vatn, Leppin, Klaka, súkkulaðirúsínur og banana.
- Álteppi, flauta og hlaðinn sími skilyrði!
12 km utanvegahlaup
- Kl. 11:00 Afhending gagna Kleifum, Ólafsfirði
- Kl. 11:45 Ræst út frá Kleifum
5 km og 10 km skemmtiskokk
- Kl. 11:45 Afhending gagna við Kaffi Klöru
- Kl. 12:15 Ræst út frá Kaffi Klöru
Barnahlaup 10 ára og yngri
Skráning og ræsing við Kaffi Klöru
- Kl. 12:20 Ræst út frá Kaffi Klöru
Gönguferð
- Kl. 09:00 Gönguferð úr Héðinsfirði með Maríu Bjarney
Endamark er við Kaffi Klöru þar sem verður frábær stemmning! Verðlaunaafhending kl 15:00 við Kaffi Klöru Ólafsfirði
Nánari upplýsingar
Sendið póst á: fjardargangan@gmail.com
Kort af leiðinni
