Um hlaupið

  • Vegalengdir2 km
  • Dagsetning7. júní 2026

Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) og TM standa að fjölskylduhlaupi í Reykjavík sunnudaginn 7. júní kl. 10:15. Hlaupið er haldi í samvinnu með Sjómannadeginum, Faxaflóahöfnum og Brim. Um er að ræða skemmtilegan viðburð fyrir börn og fjölskyldur þeirra þar sem hreyfing, gleði og samvera eru í forgrunni.

FRÍ og TM hafa sett saman fallega og fjölskylduvæna hlaupaleið, tæpa 2 km leið um Grandann – þátttaka er ókeypis og stendur öllum til boða.

Hlaupaleiðin

Hlaupið hefst við stóra sviðið á svæði Brims. Þaðan er hlaupið meðfram Grandabakka og Norðurgarði, áfram út Norðurslóð og meðfram sjónum.

Við endann á leiðinni er tekin U-beygja og hlaupið til baka eftir Eyjarslóð og Járnbraut, áður en komið er aftur inn á Grandabakka og hlaupið til baka að stóra sviðinu.

Leiðin er tæplega 2 km, eða um 1,99 km með vörðu, og er hugsuð sem létt og fjölskylduvæn leið fyrir börn og fullorðna sem hlaupa með þeim.

Skráning

Forskráning er á netskraning.is. Forskráningu lýkur föstudaginn 5. júní kl. 18:00 (eða fyrr ef hámarksfjölda er náð).

Hámarksfjöldi skráninga er 1200 börn og því hvetjum við fjölskyldur til að tryggja sér pláss sem fyrst! Öll börn fá glaðning að hlaupi loknu.

Dagskrá

Aðstaða fyrir hlaupið verður í geymslusvæði á vegum Brim.

Upphitun hefst kl. 10:00 fyrir framan stóra sviðið hjá Brim – þar mætir Latibær og hitar upp með tónlist og fjöri!

Hlaupið sjálft hefst kl. 10:15.

Hlaupanúmer og afhending

Hlaupanúmer má sækja dagana fyrir hlaup, 1.–6. júní í H-verslun, Bíldshöfða 9, Opnunartími verslunarinnar er frá 10:00-18:00 mánudaga til föstudaga og frá 11:00-16:00 á laugardögum. 20% afsláttur verður í boði af Nike vörum í búðinni gegn framvísun hlaupanúmers.

Einnig verður hægt að sækja númer á hlaupadag, en við hvetjum sem flest til að sækja númerin fyrir hlaupadag.

Athugið að nóg er að börnin fái hlaupanúmer – ekki þarf að skrá fullorðna sem hlaupa með.