Um hlaupið

  • Vegalengdir3 km, 5 km, 10 km
  • Dagsetning15. september 2026

Flensborgarhlaupið er frábært æfingahlaup fyrir hlaupara og hlaupahópa. Það fer fram í 14. sinn í Hafnarfirði þriðjudaginn 15. september. Allur ágóði af Flensborgarhlaupinu rennur til góðgerðarmála. Hlaupið hefst á göngustíg fyrir framan Íþróttahúsið við Strandgötu.

Sjáðu myndir frá fyrri hlaupum:

Tímasetning

Þriðjudagurinn 15. september 2026 kl. 17:30.

Vegalengdir

10 km og 5 km með tímatöku og 3 km skemmtiskokk án tímatöku. Hlaupið er ræst þannig að fyrst fara 10 km hlauparar af stað, svo 5 km og loks 3 km.

Hlaupaleiðin og staðsetning

Hlaupaleiðin er svokölluð Bessastaðaleið – sjá kort hér fyrir neðan og lýsingu hér á eftir.

Hlaupið hefst við strætisvagnaskýlið við Fjarðargötu gegnt íþróttahúsinu (Strandgötu). Hlaupið er á göngustígnum framhjá Norðurbakka í átt að Sundhöllinni og samhliða Herjólfsgötu eins langt og hægt er á göngustígnum, alla leið framhjá Hrafnistu, Herjólfsbraut og upp á gamla Álftanesveginn. Þar er beygt til vinstri (í vestur), inn á gamla Álftanesveginn, að undirgöngunum undir nýja Álftanesveginn, að skilti sem vísar m.a. á varpland og þar nærri verður snúningspunktur. Þaðan er farin sama leið til baka niður á Fjarðargötu. Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir þá sem hlaupa 10 km.

Skráning

Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá hér fyrir ofan, til kl. 13 á hlaupdegi. Ekki er hægt að skrá á staðnum en afhending keppnisgagna er frá kl 16:00 í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Verðlaunaafhending fer einnig fram Íþróttahúsinu við Strandgötu  að hlaupi loknu.

Þátttökugjald

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 1.500 kr. óháð vegalengd (18 ára og yngri)
  • 3.000 kr. fyrir 10 km og 5 km hlaup
  • 1.500 kr. fyrir skemmtiskokk, 3 km

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í kvenna- og karlaflokki. Einnig verður framhaldsskólameistari kvenna og karla krýndur. Verðlaunaafhending hefst ca klukkan 18:30.