Þátttökugjald

  • 3 km - 18 ára og yngri1.000 kr
  • 3 km - 19 ára og eldri1.500 kr
  • 5 km - 18 ára og yngri1.000 kr
  • 5 km - 19 ára og eldri3.000 kr
  • 10 km - 18 ára og yngri1.000 kr
  • 10 km - 19 ára og eldri3.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir3 km, 5 km, 10 km
  • Dagsetning19. september 2023
Sjá úrslit

Flensborgarhlaupið fer fram í Hafnarfirði þann 19. september. Allur ágóði af Flensborgarhlaupinu 2023 rennur til verkefnisins "Ungt fólk og CP – jafningjafræðsla og stuðningur á vegum CP félagsins á Íslandi". Hlaupið hefst við Flensborgarskólann, Hringbraut 10.

Tímasetning

Þriðjudagurinn 19. september 2023 kl. 17:30.

Vegalengdir

10 km og 5 km með tímatöku og 3 km skemmtiskokk án tímatöku. Vegalengdir eru mældar af viðurkenndum aðilum. Hlaupið er ræst þannig að fyrst fara 10 km hlauparar af stað, svo 5 km og loks 3 km.

Hlaupaleiðin og staðsetning

Rásmarkið er við Flensborgarskólann. Þaðan er hlaupið upp Selvogsgötu og áfram um Öldugötu. Kaldárselsvegur tekur svo við af Öldugötu og hlaupið er eftir honum inn í átt að Hvaleyrarvatni. Við hringtorg þarf að fara yfir götu (Kaldárselsveg). Hlaupið er í gegnum undirgöng og meðfram hesthúsunum, áleiðis í átt að Hvaleyrarvatni.

  • 3 km hlaup snýr við við hringtorg. Þarf ekki að fara yfir götuna.
  • 5 km hlaup snýr við á stígnum áður en komið er að afleggjaranum að Hvaleyrarvatni.
  • 10 km hlaup hleypur fram hjá afleggjaranum að Hvaleyrarvatni og áfram í átt að Helgafelli.

Tónlist og hvatning verður við alla snúningspunkta, hressing verður á 5 km snúningspunkti.


Skráning

Skráning fer fram á hlaup.is, sjá hér fyrir ofan, til kl. 13 á hlaupdegi. Ekki er hægt að skrá á staðnum en afhending keppnisgagna er frá kl 16:00 í Flensborgarskólanum við Hringbraut. Grill og verðlaunaafhending fer einnig fram við Flensborgarskólann að hlaupi loknu.

Þátttökugjald

Skráningargjöld eru eftirfarandi:

  • 1.000 kr. óháð vegalengd (18 ára og yngri)
  • 3.000 kr. fyrir 10 km og 5 km hlaup
  • 1.500 kr. fyrir skemmtiskokk, 3 km

Innifalið í þátttökugjaldi er flögutímataka (5 km/10 km), brautarvarsla og hressing í lok hlaups.

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í 5km og 10km í öllum flokkum. Einnig verður framhaldsskólameistari í 10 km verðlaunaður.

Annað

Flensborgarskólinn skipuleggur hlaupið í samstarfi við Skokkhóp Hauka og Hlaupahóp FH.