46. Flóahlaupið er haldið við Félagslund, Gaulverjarbæjarhreppi laugardaginn 13. apríl kl. 13:00. Flóahlaupið var kosið Götuhlaup ársins 2023 af lesendum hlaup.is.
Viðtal við fulltrúa Flóahlaupsins eftir verðlaunaafhendingu á Götuhlaupi ársins 2023.
Vegalengdir
- 3 km með tímatöku
- 5 km með tímatöku
- 10 km með tímatöku
Allar vegalengdir eru mældar af löglegum mælingamanni FRÍ. Hluti af 10 km hlaupinu er hlaupinn á malarvegi og því ekki viðurkennt að fullu. 3 km og 5 km hlaupin eru hlaupin á malbiki og löglega mæld.
Hægt er að sjá kort af leiðinni neðst á þessari síðu.
Skráning og verð
Forskráning í hlaupið fer fram hér á hlaup.is (sjá efst á þessari síðu) og er forskráning á netinu opin til kl. 22, föstudaginn 12. apríl. Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum. Ath. að greiða verður með peningum, enginn POSI á staðnum.
Í forskráningu er skráningargjaldið:
- 1.500 kr fyrir 14 ára og yngri
- 3.000 kr fyrir 15 ára og eldri
Eftir að forskráningu lýkur hækkar skráningargjaldið um 1.000 kr fyrir 15 ára og eldri. Þeir sem skrá sig á staðnum greiða því 1.500 ef 14 ára og yngri og 4.000 kr ef 15 ára og eldri.
Innifalið í skráningargjaldinu eru veitingar eftir hlaupið.
Flokkaskipting
3 km
- Strákar 14 ára og yngri
- Stelpur 14 ára og yngri
5 km
- Konur opinn flokkur
- Karlar opinn flokkur
10 km
- Konur 39 ára og yngri
- Konur 40-49 ára
- Konur 50-59 ára
- Konur 60 ára og eldri
- Karlar 39 ára og yngri
- Karlar 40-49 ára
- Karlar 50-59 ára
- Karlar 60-69 ára
- Karlar 70 ára og eldri
Hlaupaleið
Hægt er að sjá kort af leiðinni neðst á þessari síðu.
Verðlaun
Verðlaun fyrir þrjá fyrstu í öllum vegalengdum, þar af er bikar fyrir fyrsta karl og konu í hverri vegalengd. Í 10 km hlaupinu eru einnig verðlaun fyrir þrjá fyrstu í öllum aldursflokkum. Auk þess fá allir verðlaun fyrir þátttöku.
Nánari upplýsingar
Allir áhugasamir eru hvattir til að koma og taka þátt í þessu skemmtilega og sögufræga hlaupi um sunnlenskar sveitir.
Upplýsingar veitir Bryndís: bryndisdalbae@gmail.com eða Markús Ívarsson krusihol@gmail.com.