Hólmsheiðarhlaup UltraForm og Fram og Flóahlaupið eru Utanvegahlaup og Götuhlaup ársins 2023

uppfært 04. febrúar 2024

Verðlaunaafhending fyrir hlaup ársins 2023 fór fram í dag, sunnudaginn 4. febrúar.

Niðurstaða í einkunnagjöf hlaupara fyrir hlaup ársins 2023 er sú að Flóahlaupið var valið Götuhlaup ársins 2023 og Hólmsheiðarhlaup UltraForm og Fram var valið Utanvegahlaup ársins 2023. Í flokki götuhlaupa hafnaði Fossvogshlaup Hleðslu öðru sæti og Akureyrarhlaupið í þriðja sæti. Í flokki utanvegahlaupa hafnaði Súlur Vertical í öðru sæti og Snæfellsjökulshlaupið í þriðja sæti. Við birtum núna efstu þrjú hlaupin í hvorum flokki, en hægt er að skoða allan listann með sundurliðun á einstaka þáttum undir "Einkunnir hlaupa" á hlaup.is.

Við einkunnagjöf á hlaupum ársins gefa hlauparar tvennslags einkunnir. Annars vegar einkunnir fyrir hina ýmsu þætti hlaupsins og með því að reikna saman þessa þætti fæst "Útreiknuð einkunn". Hlauparar gefa svo eina heildareinkunn "Gefin einkunn" sem byggir á hans mati fyrir hlaupinu í heild sinni. Til að fá út lokaniðurstöðu um hlaup ársins eru þessar tvær einkunnir sameinaðar og fengin út ein heildareinkunn sem ræður endanlegri röð hlaupanna í valinu um hlaup ársins 2023. Til að eiga möguleika á að komast á þennan lista í ár eins og áður þarf hlaupið að fá einkunnagjöf frá að minnsta kosti 10 hlaupurum.

Götuhlaup ársins 2023

RöðNafnEinkunn
1Flóahlaupið4,82
2Fossvogshlaup Hleðslu4,76
3Akureyrarhlaupið4,68

Götuhlaup Ársins 2023 7T4A0954
Fulltrúar götuhlaupa frá vinstri: Flóahlaupið, Fossvogshlaup Hleðslu og Akureyrarhlaupið

Utanvegahlaup ársins 2023

RöðNafnEinkunn
1Hólmsheiðarhlaup UltraForm og Fram4,77
2Súlur Vertical4,76
3Snæfellsjökulshlaupið4,74

Utanvegahlaup Ársins 2023 7T4A0960
Fulltrúar utanvegahlaupa frá vinstri: Hólmsheiðarhlaup Ultraform og Fram, Súlur Vertical og Snæfellsjökulshlaupið

Hlaup.is þakkar stuðningsaðilum sem gáfu verðlaun, Sportís, Íslandsbanka og Icelandair.

Langhlaupari Ársins 2023 Öll Logo