Forsetahlaup UMFÍ er árlegur fjölskylduviðburður sem haldin er á mismunandi stöðum á landinu. Hver og einn velur sér hlaupalengd og hleypur á sínum forsendum. Engin tímataka. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson tekur þátt og velur sér hlaupalengd.
Vegalengdir og tímasetningar
Hlaupið fer fram laugardaginn 2. september og hefst kl. 10:00.
Lagt er af stað frá Íþróttamiðstöðinni á Patreksfirði og hlaupinn einfaldur hringur í bænum og endað á sama stað. Hlaupið er á malbiki.
Vegalengdir sem í boði eru: 1 km, 2,5 km og 5,0 km, en engin tímataka verður í hlaupinu.
Skráning og verðlaun
Skráning er hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu. Þátttökugjald er kr. 2.000.- fyrir 18 ára og eldri (miðast við fæðingarár) en frítt fyrir aðra.
Allir frá þátttökuverðlaun.
Hægt verður að nálgast þátttökuarmbönd kl. 18:00 -19:00 á föstudeginum 1. september og frá kl. 09:00 á laugardagsmorgninum 2. september við Íþróttamiðstöðina á Patreksfirði.
Skráningu lýkur hér á hlaup.is kl. 22:00 föstudaginn 1. september en hægt verður að skrá sig á staðnum á hlaupdaginn milli kl. 9:00 og 10:00.
Umsjón
(UMFÍ) Ungmennafélag Íslands og (HHF) Héraðssambandið Hrafnaflóki.
Nánari upplýsingar
- Ómar Bragi Stefánsson: 898 1095
- Ásgeir Sveinsson: 896 2019