Þátttökugjald

  • 5 km - 12 til 18 ára1.000 kr
  • 5 km - 19 ára og eldri2.500 kr
  • 10 km - 12 til 18 ára1.000 kr
  • 10 km - 19 ára og eldri2.500 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km, 10 km
  • Dagsetning25. ágúst 2022
Sjá úrslit

Fossvogshlaup Hleðslu verður haldið fimmtudaginn 25. ágúst við Víkina í Fossvogi í tíunda sinn. Boðið er upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km og hefst hlaupið kl 19:00. Fossvogshlaupið var haldið árlega frá 2010 til 2019, eða í níu ár og var eitt af fjölmennari sumarhlaupunum hvert ár. Eftir tveggja ára hlé ætlum við að halda upp á 10 ára afmæli Fossvogshlaupsins. Í lok hlaups er boðið upp á veglegt kökuhlaðborð í Víkinni

Vegalengdir

Vegalengdir eru 5 km og 10 km með tímatöku. Vegalengdir eru löglega mældar og viðurkenndar af Frjálsíþróttasambandi Íslands. Hlaupaleiðin er hringur í Fossvogsdalnum. Einn hringur er 5 km og tveir hringir eru 10 km. Í tilefni af 10 ára afmæli hlaupsins verður hlaupið öfugan hring í ár. Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir þá sem hlaupa 10 km og eftir hlaup fyrir alla þátttakendur. Allir hlauparar sem náð hafa 12 ára aldri eru velkomnir, jafnt byrjendur sem lengra komnir.

Kort af leiðinni er neðst á þessari síðu.

Tími og staðsetning

Hlaupið fer fram í Fossvogi fimmtudaginn 25. ágúst kl. 19:00. Hlaupið er frá Víkinni, félagsheimili Víkings, Traðarlandi 1. Vinsamlegast mætið tímanlega.

Þátttökugjald og skráning

Forskráning er á netskraning.is.

Verð í forskráningu til miðnættis 24. ágúst:

  • 2.500 kr,- fyrir 19 ára og eldri (f. 2003 og fyrr)
  • 1.000 kr,- fyrir 12-18 ára (f. 2004 - 2010)

Skráning á hlaupdegi:

  • 3.500 kr,- fyrir 19 ára og eldri (f. 2003 og fyrr)
  • 1.500 kr,- fyrir 12-18 ára (f. 2004 - 2010).

Afhending hlaupagagna

Hlaupagögn verða afhent í íþróttasalnum í Víkinni á hlaupdegi, fimmtudaginn 25. ágúst frá kl. 16:00 - 18:30.

Miðvikudaginn 24. ágúst geta þátttakendur sótt hlaupagögn í Eins og fætur toga, Höfðabakka 3, 110 Reykjavík, á milli 16:00 og 18:00.

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í karla- og kvennaflokki í báðum vegalengdum. Einnig verða veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti í hverjum aldursflokki í báðum vegalengdum.  
Verðlaunaafhending fer fram í íþróttasalnum í Víkinni að hlaupi loknu. Fjöldi glæsilegra útdráttarverðlauna.

Aldursflokkar

Úrslit verða birt sem heildarúrslit og eftir aldursflokkum:

  • 12-18 ára
  • 19-29 ára
  • 30-39 ára
  • 40-49 ára
  • 50-59 ára
  • 60-69 ára
  • 70 ára og eldri

Salerni og fatageymsla

Salerni og fatageymsla (vaktað) er í tengibyggingu við íþróttasalinn. Engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðrum munum og ekki heldur á hlaupaleiðinni.

Almennar upplýsingar

Að hlaupi loknu er þátttakendum boðið upp á hressingu og veitingar í íþróttasalnum í Víkinni. Þátttakendur eru hvattir til að sameinast í bíla og nota almenningssamgöngur. Þeir sem búa næst svæðinu eru beðnir um að skilja bílinn eftir heima. Bílastæði eru í Stjörnugróf, stæði austan við Víkina og við Fossvogsskóla. Athugið að bílastæði vestan við Víkina verða lokuð vegna hlaupsins frá kl. 16:00. Traðarlandi verður lokað fyrir umferð frá kl. 18:45 og þar til síðasti hlaupari er komin í mark (um kl. 20:30)

Úrslit verða birt hér á hlaup.is og timataka.net.

Myndir frá hlaupinu verða birtar hér á hlaup.is og á Facebook síðu hlaupsins.

Skipuleggjendur

Almenningsíþróttadeild Víkings , netfang: almennings@vikingur.is
Hlaupstjóri: María Helen Eiðsdóttir, sími 697-7733

Við erum á Facebook - Endilega deilið, fylgist með og „lækið".