Þátttökugjald

  • 8,5 km - 14 ára og yngri1.000 kr
  • 8,5 km - 15 ára og eldri5.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir8,5 km
  • Dagsetning11. júní 2022
Sjá úrslit

Gullspretturinn er hlaup í kringum Laugarvatn sem fram fer þann 11. júní og hefst kl. 11 við gróðurhúsið niður við vatn.

Vegalengd og leið

Hlaupið verður í kringum Laugarvatn yfir ár, mýrar, móa með frjálsri aðferð. Vegalengdin er ca. 8,5 km og drykkjarstöð verður við Útey eftir að Hólárós hefur verið vaðinn.Tímataka fer fram með flögum.

GUL2018 0079
Vaðið í Laugarvatni
Skráning og þátttökugjald

Forskráning fer fram hér á hlaup.is og hefst sunnudaginn 10. apríl kl. 18:00, sjá efst á þessari síðu og er opin til kl. 20 fimmtudaginn 9. júní. Afhending gagna hefst kl. 8 á hlaupdag. Hámarksfjöldi þátttakenda er 300 manns í forskráningu. Eftir að hámarksfjölda er náð, þá verður hægt að skrá sig á biðlista.

Skoða biðlista.

Þátttökugjald er kr. 5.000. Allur ágóði rennur til góðgerðarmála.
Ath! Börn 14 ára og yngri verða að hlaupa í fylgd með fullorðnum. Skráningargjald 1.000 krónur fyrir þau.

Athugið að hægt verður að afskrá sig og fá þátttökugjöld endurgreidd til og með 31. maí. Eftir það verður ekki endurgreitt, en óskað er eftir að hlauparar tilkynni forföll svo hægt verði að bjóða þeim sem eru á biðlista sæti í hlaupinu. Ekki verða framkvæmdar nafnabreytingar.

Flokkaskipting og tímataka

Keppt verður í karla og kvennaflokki.

Verðlaun

Verðlaun fyrir fyrstu sætin í karla- og kvennaflokki og vegleg útdráttarverðlaun.
Þátttakendum boðið upp á hverabrauð Erlu, Egils gull, Kókómjólk, Hleðslu og reyktan silung frá Útey að loknu hlaupi.

Annað

Aðgangur að baðstaðnum, Laugarvatn Fontana verður innifalinn sem og aðgangur að sundlauginni á Laugarvatni.

Til að forðast umferðaröngþveiti niður við vatn er þátttakendum bent á að leggja bílum sínum á malarvellinum sunnan við íþróttahúsið.

Nánari upplýsingar

Hjá Grímu á netfangi: grima@ml.is.