Gullspretturinn er hlaup í kringum Laugarvatn sem fram fer þann 13. júní og hefst kl. 11 við dæluhúsið niður við vatn. Sunnan við aðalhverinn neðan við íþróttahúsið.
Vegalengd og leið
Hlaupið verður í kringum Laugarvatn yfir ár, mýrar, móa með frjálsri aðferð. Vegalengdin er ca. 8,5 km og drykkjarstöð verður við Útey eftir að Hólárós hefur verið vaðinn. Tímataka fer fram með flögum.
Skráning og þátttökugjald
Skráning fer fram á netskraning.is.
Hægt verður að fá gögn afhent kvöldið áður í Íþróttahúsi Bláskógabyggðar á Laugarvatni. Afhending gagna hefst kl. 9:00 á hlaupdag. Hámarksfjöldi þátttakenda er 350 manns.
Þátttökugjald er kr. 7.500 kr. fyrir 15 ára og eldri (fæðingarár gildir). Ath! Börn 14 ára og yngri verða að hlaupa í fylgd með fullorðnum, skráningargjald 1.500 krónur fyrir þau. Hægt verður að afskrá sig og fá þátttökugjöld endurgreidd til og með 31. maí.
Allur ágóði af hlaupinu rennur til kaupa á björgunarbúnaði fyrir Björgunarsveitina Ingunni.
Verðlaun
Verðlaun fyrir fyrstu sætin í karla- og kvennaflokki og vegleg útdráttarverðlaun. Einnig verða vegleg útdráttarverðlaun fyrir þá sem skila númerinu sínu. Þátttakendum boðið upp á hverabrauð Fontana, Egils gull, Kókómjólk, Hleðslu og reyktan úteyjarsilung að loknu hlaupi.
Annað
Gullspretturinn reynir að vera umhverfisvæn og því eru hlauparar hvattir til að skila inn númerinu sínu. Búningsaðstaða stendur keppendum til boða í Íþróttahúsinu. Að auki geta keppendur geymt verðmæti í verðmætageymslu í Íþróttahúsinu á meðan hlaupi stendur.
Aðgangur að sundlauginni á Laugarvatni er innifalinn fyrir keppendur.
Til að forðast umferðaröngþveiti niður við vatn er þátttakendum bent á að leggja bílum sínum á malarvellinum sunnan við íþróttahúsið.
Nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar inn á vefsíðu hlaupsins gullspretturinn.is
