Hafnarfjarðarhlaupið verður haldið í fjórða skiptið fimmtudaginn 11. júní 2026 kl. 20:00. Hlaupin verður frábær leið frá miðbænum um íbúða- og atvinnusvæði hafnarinnar. Hafnarfjarðarhöfn og Eimskip opna sérstaklega tollsvæði til að búa til möguleika á einni hröðustu götuhlaupabraut landsins.
Boðið er upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km. Hlaupið er haldið af Frjálsíþróttadeild FH í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ, Fjarðarkaup, Nike og fleiri styrktaraðila.
Hlaupaleiðin
- Hlaupaleiðin er marflöt og býður þar með upp á góðar bætingar. Hérar verða í báðum vegalengdum
- 5 km: 20 mín, 25 mín, 30 mín
- 10 km: 40 mín, 50 mín, 60 mín
- Hlaupið er vottað af FRÍ
- Hringurinn er 5 km og þátttakendur í 10 km hlaupi hlaupa tvo hringi
- Ekkert aldurstakmark er í hlaupið
Leiðarlýsing
Ræst er á Strandgötu við Thorsplan. Hlaupið er eftir Vesturgötu og út fyrir Norðurbakkann. Þar er farið inn á Strandstíginn og Norðurbakkinn hlaupinn til baka. Við strætóskýli á móts við Íþróttahúsið er farið út á Strandgötu og hlaupið út á höfnina við Hafró. Þar er farið inn á lokað svæði Hafnarfjarðarhafnar og áfram að lokuðu athafnasvæði Eimskips. Þaðan er farið að Óseyrarbraut að Fornubúðum og Strandgatan hlaupin til baka. Við Hafnarfjarðarkirkju er beygt af hringtorgi við Lækjargötu og inn Strandgötu að Thorsplani.
Skráning
Skráning fer fram á hlaup.is, sjá efst á þessrai síðu. Opið er fyrir netskráningu til kl. 12:00 á hlaupdag fimmtudaginn 11. júní. Frá kl. 13:00 - 17:00 á hlaupdag verður hægt að skrá sig í Fjarðkaupum. Þau sem skrá sig fyrir miðnætti sunnudaginn 7. júní fara í pott þar sem m.a. verður dregið út kr. 50.000,- gjafabréf frá Fjarðarkaupum.
Þátttökugjöld eru eftirfarandi:
- 10 km kr. 5.500 en kr. 3.500 fyrir 15 ára og yngri (fædd 2011 og síðar)
- 5 km kr. 4.500 en kr. 2.500 fyrir 15 ára og yngri (fædd 2011 og síðar)
Ekkert aldurstakmark er í hlaupið.
Afhending gagna
Afhending keppnisgagna fer fram í Fjarðarkaupum, þriðjudaginn 9. júní kl 16-18, miðvikudaginn 10. júní kl 13-18 og fimmtudaginn 11. júní kl 13-17.
Verðlaun
Verðlaun í 10 km - Karlar og konur
- 1. verðlaun kr. 50.000,- í reiðufé frá Fjarðarkaupum og kr. 20.000,- gjafabréf frá Nike.
- 2. verðlaun kr. 30.000,- í reiðufé frá Fjarðarkaupum og kr. 20.000,- gjafabréf frá Nike.
- 3. verðlaun kr. 20.000,- í reiðufé frá Fjarðarkaupum og kr. 20.000,- gjafabréf frá Nike.
Verðlaun í 5 km - Karlar og konur
- 1. verðlaun kr. 25.000,- í reiðufé frá Landsbankanum og kr. 15.000,- gjafabréf frá Nike.
- 2. verðlaun kr. 25.000,- gjafabréf frá Nike.
- 3. verðlaun kr. 20.000,- gjafabréf frá Nike.
Nánari upplýsingar
Frjálsíþróttadeild FH: Sigurður P. Sigmundsson, siggip@hlaup.is
