Þátttökugjald

  • 5 km - 15 ára og yngri2.500 kr
  • 5 km - 16 ára og eldri4.500 kr
  • 10 km - 15 ára og yngri3.500 kr
  • 10 km - 16 ára og eldri5.500 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km, 10 km
  • Dagsetning11. júní 2026

Hafnarfjarðarhlaupið verður haldið í fjórða skiptið fimmtudaginn 11. júní 2026 kl. 20:00. Hlaupin verður frábær leið frá miðbænum um íbúða- og atvinnusvæði hafnarinnar. Hafnarfjarðarhöfn og Eimskip opna sérstaklega tollsvæði til að búa til möguleika á einni hröðustu götuhlaupabraut landsins.

Boðið er upp á tvær vegalengdir, 5 km og 10 km. Hlaupið er haldið af Frjálsíþróttadeild FH í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ, Fjarðarkaup, Nike og fleiri styrktaraðila.

Hlaupaleiðin
  • Hlaupaleiðin er marflöt og býður þar með upp á góðar bætingar
  • Hlaupið er vottað af FRÍ
  • Hringurinn er 5 km og þátttakendur í 10 km hlaupi hlaupa tvo hringi
  • Ekkert aldurstakmark er í hlaupið

Leiðarlýsing

Ræst er á Strandgötu við Thorsplan. Hlaupið er eftir Vesturgötu og út fyrir Norðurbakkann. Þar er farið inn á Strandstíginn og Norðurbakkinn hlaupinn til baka. Við strætóskýli á móts við Íþróttahúsið er farið út á Strandgötu og hlaupið út á höfnina við Hafró. Þar er farið inn á lokað svæði Hafnarfjarðarhafnar og áfram að lokuðu athafnasvæði Eimskips. Þaðan er farið að Óseyrarbraut að Fornubúðum og Strandgatan hlaupin til baka. Við Hafnarfjarðarkirkju er beygt af hringtorgi við Lækjargötu og inn Strandgötu að Thorsplani.

Skráning

Skráning fer fram á hlaup.is, sjá efst á þessrai síðu. Opið er fyrir netskráningu til miðnættis miðvikudaginn 10. júní. Þau sem skrá sig fyrir miðnætti sunnudaginn 7. júní fara í pott þar sem m.a. verður dregið út kr. 50.000,- gjafabréf frá Fjarðarkaupum.

Þátttökugjöld eru eftirfarandi:

  • 10 km  kr. 5.500 en kr. 3.500 fyrir 15 ára og yngri (fædd 2011 og síðar)
  • 5 km  kr. 4.500 en kr. 2.500 fyrir 15 ára og yngri (fædd 2011 og síðar)

Ekkert aldurstakmark er í hlaupið.

Afhending gagna

Afhending keppnisnúmera fer fram í Fjarðarkaupum dagana 9.-11. júní. Nánari tímasetning auglýst síðar.

Verðlaun

Verðlaun í 10 km í boði Fjarðarkaupa
Fjarðarkaup leggja til samtals kr. 200.000,- í verðlaunafé eins og hér segir:

  1. sæti karla og kvenna kr. 50.000,-
  2. sæti karla og kvenna kr. 30.000,-
  3. sæti karla og kvenna kr. 20.000,-

Verðlaun í 5 km eru fyrir fyrstu þrjú sæti karla og kvenna í boði Nike

Nánari upplýsingar

Frjálsíþróttadeild FH: Sigurður P. Sigmundsson, siggip@hlaup.is