Þátttökugjald

  • 4,7 km - 12 ára og yngri0 kr
  • 4,7 km - 13 ára og eldri2.000 kr
  • 12 km Ríkishringur4.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir4,7 km, 12 km
  • Dagsetning24. september 2022
Sjá úrslit

Laugardaginn 24. september heldur Skógræktarfélag Reykjavíkur Heiðmerkuhlaupið í þriðja sinn í samstarfi við Náttúruhlaup. Með hlaupinu vill Skógræktarfélagið bjóða fastagestum og nýjum áhugahlaupurum að kynnast stígakerfinu í Heiðmörk og njóta þess að hlaupa í faðmi skógarins.

Skógræktarfélag Reykjavíkur var stofnað árið 1901 og varð því 120 ára á síðasta ári. Félagið hefur m.a. umsjón með skóginum í Heiðmörk og Esjuhlíðum ásamt viðhaldi og uppbyggingu stígakerfis og áningastaða á þessum svæðum. Sífellt fleiri velja að stunda hlaup í skógi enda er þar alltaf skjól! Hlauparar eru eindregið hvattir til að gerast félagsmenn í Skógræktarfélaginu og styðja með því við uppbyggingu stíga til hagsbóta fyrir hlaupara, árgjaldið er 4.000 kr. og fer skráning fram hér.

Vegalengdir
  • 4,7 km Skemmtiskokk
  • 12 km - Hinn vinsæli Ríkishringur.

Hægt er að nálgast á kort af Heiðmörk með merktum leiðum á heidmork.is.

Staðsetning

Hlauparar leggja bílum sínum á Borgarstjóraplani (sjá staðsetningu hér) en þaðan er gengið að Símamannalaut þar sem hlaupið hefst (sjá kort).

Heiðmerkurhlaupið

Tímasetningar
  • 11.00: 12 km – Ríkishringur. Ræst frá Símamannalaut/Borgarstjóraplani. Eftir hlaup verður boðið upp á kakó og kaffi yfir varðeldi.
  • 13.00: 4,7 km skemmtiskokk. Ræst frá Símamannalaut/Borgarstjóraplani. Guli hringurinn. Einnig má nýta þessa leið sem gönguleið.
  • 13.30: Verðlaunaafhending fyrir fyrstu sætin og útdráttarverðlaun frá Fjallakofanum.


Eftir hlaup verður boðið upp á kakó og kaffi yfir varðeldi.


Þátttökugjald og skráning

Skráning fer fram hér á hlaup.is, sjá skráningarhlekk efst á þessari síðu og lýkur hér á hlaup.is kl. 12 á hádegi föstudaginn 23. september. Þátttökugjöld eru eftirfarandi:

  • Skemmtiskokk - 4,7 km: 2.000 kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri.
  • Ríkishringurinn - 12 km: 4.000 kr


Innifalið í þátttökugjaldi er flögutímataka, brautarvarsla og hressing í lok hlaups. Keppnisgögn verða afhent æa eftirfarandi stöðum og tímum:

  • Fjallakofanum Hallarmúla 2, fimmtudaginn 22. september kl. 10-18.
  • Í Elliðavatnsbæ föstudaginn 23. september milli kl. 13:00 og 17:00. Athugið: 4 km eru frá Elliðavatnsbænum þar sem keppnisgögn eru afhent og að Borgarstjóraplani/Símamannalaut þar sem hlaupið hefst.
  • Í Elliðavatnsbæ á keppnisdag frá kl. 9:30 - 10:30

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin í karla - og kvennaflokki, ásamt útdráttarverðlaunum.


Í verðlaun verða jólatré frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur sem vinningshafar geta nálgast á hinum árlega jólamarkaði sem haldinn er við Elliðavatn aðventuhelgarnar fyrir jól. Einnig verða útdráttarverðlaun frá Fjallakofanum sem er styrktaraðili hlaupsins.

Nánari upplýsingar

Skipuleggjandi hlaupsins er Skógræktarfélag Reykjavíkur í samstarfi við Náttúruhlaup. Nánari upplýsingar: heidmork@heidmork.is.