Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km, 10 km
  • Dagsetning12. september 2026

Hjartadagshlaupið fer fram laugardaginn 12. september kl. 10.

Vegalengdir og hlaupaleið

Í boði eru tvær tímamældar vegalengdir, 5 km og 10 km. Ræst er kl. 10:00 í báðar vegalengdir inn á Kópavogsvelli en hlaupið er út Kársnes og til baka í mark inn á Kópavogsvöll. Drykkjarstöð verður á miðri hlaupaleið og eftir 5 km og við endamark. Hlaupið er vottað götuhlaup af Frjálsíþróttasambandi Íslands og úrslit því skráð í afrekaskrá fyrir þá sem óska þess.

Verðlaun

Verðlaun eru veitt fyrir þrjú efstu sæti karla og kvenna í báðum flokkum og börn 12 ára og yngri sem taka þátt fá öll viðurkenningu. Verðlaunaafhending fer fram strax að hlaupi loknu.

Skráning og þátttökugjald

Skráning í hlaupið fer fram á netskraning.is. Einungis 400 númer verða í boði.

  • 10 km hlaup kostar 5.000 kr
  • 5 km hlaup kostar 3.000 kr
  • Börn 15 ára og yngri greiða ekki gjald

Hlaupagögn verða afhent í versluninni Hlaupár í Fákafeni 11, vikuna 7. - 11. september á opnunartíma klukkan 11 til 18.

Aðrar upplýsingar

ÞÁTTTAKENDUR ERU HVATTIR TIL AÐ KLÆÐAST RAUÐU.

Hjartadagshlaupið er haldið í tilefni Alþjóðlegs hjartadags sem haldinn er í yfir 120 löndum á hverju ári. Markmið Hjartadagsins, er að auka vitund og þekkingu almennings á ógnum hjarta- og æðasjúkdóma og leggja áherslu á heilbrigða lífshætti svo að börn, unglingar og fullorðnir um allan heim öðlist betra og lengra líf.