Hjörleifshöfðahlaup Kötlu jarðvangs fer fram laugardaginn 27. apríl 2024 kl. 11:00 og er við jarðvættið Hjörleifshöfða sem er um 15 km austan við Vík. Hlaupið er haldið í jarðvangsviku Kötlu jarðvangs og á sama tíma fer einnig fram umhverfis- og menningarhátíðin Vor í Vík (22-28/04), svo margt er í gangi í Mýrdalnum og eru öll hvött til að kynna sér dagskrána á Facebooksíðu hátíðarinnar “Vor í Vík”.
Vegalengdir
Fjórar vegalengdir verða í boði, 2,5 km, 7 km, 11 km og ef áhugi er fyrir hendi verður opnað fyrir 22 km leið. Hægt er að hlaupa stuttu leiðina 2,5 km meðfram höfðanum fram og til baka, 7 km hring um höfðann á flatlendi í sandi og grasi með sama upphafs- og endapunkt, 11 km með því að bæta 4 km við og fara upp á höfðann, ca. 220m hækkun, og enda svo í rásmarki á flatlendi. Þau sem vilja hlaupa 22 km myndu þá fara 11 km hringinn tvisvar sinnum.
Sjá hlaupaleiðir neðst á þessari síðu og á mynd hér fyrir neðan.
Skráning
Skráning er hér á hlaup.is, sjá efst á þessari síðu og er opin til kl. 22:00 föstudaginn 26. apríl.
Flokkaskipting
Tími verður mældur hjá öllum og úrslit birt eftir aldursflokkum, sjá eftirfarandi lista:
- 16 ára og yngri
- 17 - 59 ára
- 60 ára og eldri
Þátttökugjald
Þátttökugjald er 3.000 fyrir 17 ára og eldri og 2.500 kr fyrir 16 ára og yngri.
Verðlaun
Sigurvegarar í hverri vegalengd fá bikar og fyrirtæki á svæðinu styrkja hlaupið með verðlaunum. Öll sem ljúka hlaupinu fá viðurkenningarpening. Að hlaupi loknu er þátttakendum boðið upp á súpu og Mýrdalshreppur býður þátttakendum í sundlaugina í Vík.
Annað
Hlaupaleiðin er virkilega falleg og er bráðskemmtilegt að hlaupa á þessu svæði. Í góðu veðri er gott útsýni til allra átta, að Mýrdalsjökli og Kötlu, svörtum söndum, Reynisdröngum og úfnu Atlantshafinu. Sagt er að yfirnáttúruleg öfl séu við Hjörleifshöfða sem gera það að verkum að andrúmsloftið þar er orkugefandi en jafnframt einstaklega afslappað og þeir sem koma þangað einu sinni, geta ekki beðið eftir að heimsækja staðinn á ný!
Frá Reykjavík til Víkur í Mýrdal er um 2,5 klukkustunda akstur. Fjölbreyttir gistimöguleikar eru á svæðinu og við hvetjum þátttakendur til að hafa samband við info@vik.is til að fá upplýsingar um gistingu og afþreyingu á svæðinu.
Nánari upplýsingar
Hægt er að nálgast upplýsingar um hlaupið á Facebooksíðu hlaupsins.