Kerlingarfjöll Ultra verður haldið 25. júlí 2026.
Hlaupaleiðirnar liggja um sundurskorin háhitasvæði, hyldjúp gljúfur, jökulfláka, ægilega fjallstinda og að sjálfsögðu fram hjá Kerlingu — dranganum sem fjöllin draga nafn sitt af.
Hægt er að velja um þrjár vegalengdir sem munu leiða þátttakendur um þessa mögnuðu náttúruperlu:
- 12 km
- 22 km
- 60 km
Skráning
Skráning er hjá netskraning.is.
Innifalið í verðinu eru veitingar á drykkjarstöðvum á meðan á hlaupi stendur, vegleg máltíð að keppni lokinni og aðgangur að heitu hálendisböðunum.
Nánari upplýsingar
Á vef hlaupsins: https://kerlingarfjoll.is/kerlingarfjoll-ultra
