Molduxi Trail er spennandi utanvegahlaup í fallegu umhverfi Skagafjarðar og verður haldið föstudaginn 7. ágúst 2026. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta náttúrunnar, hreyfa sig og eiga góðan dag með fjölskyldu og vinum.
Leiðalýsing
Hlaupahópurinn 550 Rammvilltar heldur utan um hlaupið og er boðið upp á tvær vegalengdir 12 km og 20 km. Báðar leiðirnar hefjast á sama stað á notalegu svæði í Litla-Skógi nálægt Hótel Miklagarði, nánar tiltekið við heimavist Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra. Hlaupið er utanvega í fallegri og fjölbreyttri náttúru í nágrenni Sauðárkróks og bjóða leiðirnar upp á stórkostlegt útsýni yfir Skagafjörðinn.
Hlaupið er ITRA vottað. Lengri leiðin gefur 1 ITRA punkt en báðar leiðir gefa ITRA-stig.
Hlaupið er upp á fjallið Molduxa sem Sauðárkrókur stendur undir og farið verður um eina af bestu hlaupaleiðum Skagafjarðar, svokallaðar Kimbastaðagötur.
Styttri leiðin 12 km, 537m hækkun
Fyrsti kafli hlaupsins verður meðfram Sauðánni í gegnum Litla Skóg, en hann er eitt af kennileitum Sauðárkróks. Þegar hlaupið er upp úr skóginum liggur leiðin upp og áleiðis í átt að fjallinu Molduxa. Sú leið býður upp á gullfallega náttúru. Stórfenglegt útsýni í skóglendi og melum og allt þar á milli. Á leiðinni blasir við allur fjörðurinn og þar með eyjarnar Drangey og Málmey. Þegar hæsta punkti er náð, við rætur Molduxa (550m) er drykkjarstöð. Eftir hana liggur leiðin niður á við og farnar eru svokallaðar Kimbastaðagötur. Þær liggja í gegnum lyng, móa og mela og bjóða upp á fyrrnefnda eyjasýn ásamt útsýni yfir Héraðsvötnin og fallegar sveitir Skagafjarðar. Hlaupið endar loks aftur í Litla Skógi þar sem endamarkið liggur við upphaf skógarins.
Lengri leiðin 20 km, 1033m hækkun
Fyrsti kafli hlaupsins verður upp með Sauðánni í gegnum Litla Skóg. Þegar hlaupið er upp úr skóginum liggur leiðin upp og áleiðis í átt að fjallinu Molduxa. Sú leið býður upp á gullfallega náttúru. Stórfenglegt útsýni í skóglendi og melum og allt þar á milli. Á leiðinni blasir við allur fjörðurinn og þar með eyjarnar Drangey og Málmey.
Þegar komið er að rótum Molduxa er hlaupið til hægri (norður) og nánast alveg hringinn í kringum fjallið (bak við það) þar til komið er að gönguleið upp á topp Molduxa. Farið er upp að hæsta punkti (750 m) þar sem gefur að líta stórfenglegt útsýni í allar áttir. Leiðin liggur svo niður aftur og er fylgt slóða að drykkjarstöð. Eftir hana liggur leiðin niður á við um svokallaðar Kimbastaðagötur, sem liggja í gegnum lyng, móa og mela og bjóða upp á fyrrnefnda eyjasýn ásamt útsýni yfir Héraðsvötnin og fallegar sveitir Skagafjarðar. Síðustu fjórir kílómetrarnir eru svo teknir í Skógarhlíðinni sem er skógi vaxin leið með fjörlegu fuglalífi og loks endar hlaupið svo aftur þar sem það hófst, neðst í Litla-Skógi.
Skráning og skráningargjöld
- 12 km: 6.500 kr til 1. júní en 8.500 kr eftir það
- 20 km: 8.500 kr til 1. júní en 10.500 kr eftir það
Skráning er á netskraning.is.
Aðrar upplýsingar
Það eru Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra sem standa fyrir þessu hlaupi. Nánari upplýsingar veitir Sara Kristjánsdóttir í síma 847-3879, molduxitrail@gmail.com.
