Þátttökugjald

  • 2 km - Ævintýrahlaup500 kr
  • 3 km - Steinninn4.900 kr
  • 14 km - Mt. Esja Ultra II9.900 kr
  • 43 km - Mt. Esja Marathon21.900 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir3 km, 14 km, 43 km
  • Dagsetning18. júní 2023
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Mt. Esja Ultra er alvöru fjallahlaup sem haldið verður í tólfta sinn sunnudaginn 18. júní 2023. Keppnin býður upp á fjölbreyttar vegalengdir sem henta öllum: Ein ferð upp að Steini, tvær ferðir upp og niður, maraþonvegalengd og 2 km ævintýrahlaup fyrir krakka.

Steinninn
Steinninn er 3 km leið og 600 metra hækkun frá Esjustofu upp að Steini. Hlaupið var fyrst haldið árið 2019 og hefur fest sig í sessi. Þetta er í raun tímataka upp að Steini og er alltaf gaman að sjá keppendur bæta tíma sinn. Markið/tímamotta er við Steininn og keppendur geta því gengið eða skokkað rólega niður að Esjustofu þar sem þeir fá Esju “finisher” glasið og léttar veitingar á drykkjarstöð.

Mt. Esja II
er 14 km leið með 1200m hækkun. Hlaupið hefst við Esjustofu og farið er tvisvar upp og niður frá Steini.

Mt. Esja Maraþon
Farnar eru fimm mismunandi leiðir upp Esjuna. Hlaupið er eitt erfiðasta fjallahlaup landsins, samtals 43 km með 3600 m hækkun.

Ævintýrahlaup fyrir krakka
Hlaupið var fyrst haldið 2021 og tókst mjög vel. Sprækir krakkar hlupu einir eða í fylgd foreldra skemmtilega og fjölbreytta leið í skóginum. Leiðin verður vel merkt en starfsmenn hlaupsins hlaupa einnig með og passa að allir hlaupið í markið með bros á vör.

Mtesja Hlaup 2021 9945
Vegalengdir í boði, skráning og verð

Skráning opnar kl. 12 laugardaginn 10. desember.

Mt. Esja Maraþon: Vegalengd 43 km, hækkun 3600m 

  • 19.900 kr. (Frá 1. desember - 30. apríl)
  • 21.900 kr. (Frá 1. maí)

Skráning lokar þegar hámarksfjölda hefur verið náð (100 keppendur) eða kl. 24 laugardaginn 17. júní.

Esja Ultra II, tvær ferðir: Vegalengd 14 km, hækkun 1200m

  • 7.900 kr. (Frá 1. desember - 30. apríl)
  • 9.900 kr. (Frá 1. maí)

Skráning lokar þegar hámarksfjölda hefur verið náð (200 keppendur)

Steinninn – THE ROCK: Vegalengd 3 km, hækkun 600m

  • 3.490 kr. (Frá 1. desember - 30. apríl)
  • 4.900 kr. (Frá 1. maí)

Skráning lokar þegar hámarksfjölda hefur verið náð (100 keppendur) eða kl. 24 laugardaginn 17. júní.

Ævintýrahlaup í Esjuskógi fyrir spræka krakka. Vegalengd 2 km, lítil hækkun

  • 500 kr. fyrir hvert barn (forráðamaður má hlaupa með)

 

Innifalið í skráningargjaldi

  • Esjubjórglasið fyrir þá sem klára hlaupin innan tímamarka (þátttökupeningur fyrir krakka)
  • Finisher gjöf fyrir þá sem klára maraþonið innan tímamarka
  • Tímataka, númer og brautargæsla
  • Íþróttadrykkir og næring á drykkjarstöð við Esjustofu
  • Léttar veitingar

Skráningargjald er ekki endurgreitt en hægt verður að gera nafnabreytingar allt að tveimur vikum fyrir keppnisdag.

Afhending gagna

Afhending rásnúmera verður í verslun 66°Norður Faxafeni föstudaginn 16. júní milli kl. 16-18.

Staðsetning

Allar vegalengdir verða ræstar frá Esjustofu á mismunandi tímum (sjá rástíma hér að neðan). Keppendur skulu mæta tímanlega og þeir sem keppa í maraþoninu verða að skrá sig sérstaklega hjá keppnisstjóra fyrir keppni.

Rástímar
  • Mt. Esja Maraþon - kl. 08:00
  • Steinninn – The Rock kl. 11:00
  • Ævintýrahlaup í Esjuskógi – kl. 12:00
  • Mt. Esja Ultra II ferðir - kl. 13:00

Mtesja Hlaup 2021 9338

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjú sætin hjá körlum og konum í öllum vegalengdum (fyrir utan Ævintýrahlaupið, allir fá verðlaun).

Sigurvegarar í öllum vegalengdum (fyrir utan Ævintýrahlaup) fá að auki í verðlaun hinn margrómaða verðlaunagrip ESJUSTEININN.

Nánari upplýsingar

 

Kort

Þú getur séð Google kort af leiðinni hér neðst á þessari síðu og þú getur líka hlaðið leiðinni niður í úrið þitt: https://connect.garmin.com/modern/course/106638730

Hér fyrir neðan eru einnig myndir og hæðarkort af leiðunum í Mt. Esja Ultra hlaupinu.

Mt. Esja Ultra Kort Maraþon 2022
Mt. Esja Ultra Maraþon kort

Mt. Esja Ultra Marathon Elevation Kort
Mt. Esja Ultra Maraþon hæðarkort

Mt. Esja Ultra II Kort
Mt. Esja Ultra II kort

Mt. Esja Ultra II Elevation
Mt. Esja Ultra II hæðarkort

Útbúnaður

Sterklega er mælt með því að hver keppandi hafi eftirfarandi útbúnað til taks (skyldubúnaður fyrir keppendur í maraþoni):

  • Plastmál til að sækja vatn í læk og á drykkjarstöð
  • Álteppi
  • Farsíma
  • Nægilegt magn af næringu og vökva (0,5-1,0 L) fyrir hvern hring
  • Teygjubindi
  • Vatnsheldan jakka úr öndunarefni
  • Húfu eða buff og hanska

Mælt er með að hafa meðferðis:

  • Göngustafi
  • Drykkjarbelti eða vatnspoka
  • Derhúfu
  • Sólgleraugu
  • Sólarvörn
  • Núningsáburð og blöðruplástra

Heimilt verður fyrir maraþonhlaupara að geyma aukabúnað  á sérstöku svæði við Esjustofu. Keppendur mega fá aðstoð frá einum utanaðkomandi aðila við Esjustofu. Það er mikilvægt að keppendur skipuleggi næringu, útbúnað, klæðnað og aðstoð vel fyrir keppni. Hlauparar þurfa að hafa meðferðis eigin næringu sem dugar út allt hlaupið.

Reglur

Aldurstakmörk

  • Steinninn: 14 ára
  • Tvær ferðir: 16 ára
  • Maraþon: 18 ára

Tímatakmörk

  • Steinninn: 90 mínútur
  • Mt. Esja Ultra II: 4 klst.
  • Mt. Esja Maraþon: 10 klst þegar lagt er af stað í síðasta sinn upp Esjuna.

Keppendur skuldbinda sig til að:

  • Stunda viðeigandi þjálfun til að ljúka keppni innan tímamarka.
  • Stunda heiðarlega keppni og fylgja settri leið skipuleggjenda.
  • Bera virðingu fyrir náttúrunni og henda engu rusli á leiðinni nema við Esjustofu.
  • Klæða sig eftir veðri og veðurspá.
  • Hafa með sér næga næringu og vökva til að klára keppni.
  • Virða reglur um utanaðkomandi aðstoð en aðeins einn einstaklingur má aðstoða hvern keppanda hverju sinni með búnað og næringu á sérstöku svæði við Esjustofu. Öll önnur utanaðkomandi aðstoð er bönnuð nema í neyð.
  • Sýna öðrum keppendum og göngufólki tillitsemi á leiðinni.
  • Hafa keppnisnúmer sýnilegt allan tímann.
  • Skrá sig hjá starfsmanni við Stein (checkpoint) og Esjustofu í hverjum hring.
  • Keppendum ber að aðstoða aðra keppendur í neyð þar til önnur viðeigandi hjálp berst.
  • Keppnisstjóri ber ekki ábyrgð á hlaupurum vegna utanaðkomandi áhrifa eins og veðurs og náttúruhamfara.
  • Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppninni en eru hvattir til að leita viðeigandi aðstoðar ef um slys eða veikindi er að ræða.
  • Keppnisstjóri getur vísað öllum frá keppni sem fylgja ekki settum reglum.
  • Keppnisstjórum er heimilt að aflýsa eða stoppa hlaupið vegna utanaðkomandi aðstæðna