Um hlaupið

  • Vegalengdir3,25 km, 7,5 km, 15 km
  • Dagsetning9. maí 2026

Neshlaup Nuun (Neshlaupið) verður haldið laugardaginn 9. maí. Hlaupið verður ræst kl 11:00 við Sundlaug Seltjarnarness. Trimmklúbbur Seltjarnarness (TKS), heldur þennan árlega viðburð nú í 38. skipti.

Vegalengdir

Í boði eru þrjár vegalengdir:

  • 3,25 km skemmtiskokk, án flokkaskiptingar en með tímatöku (flögur).
  • 7,5 km hlaupaleið, einn Neshringur með tímatöku (flögur).
  • 15 km hlaupaleið, tveir Neshringir með tímatöku (flögur) millitími gefinn.

Skráning

Forskráning fer fram á netskraning.is og lýkur á miðnætti 7. maí. Eftir að forskráningu lýkur hækkar þátttökugjald og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig tímanlega. Einnig er unnt að skrá sig á staðnum en skráningu líkur kl. 10 á hlaupadag. Afhending á hlaupagögnum fer fram í íþróttahúsinu á Seltjarnarnesi á milli kl. 17-19:00 föstudaginn 8. maí og á hlaupadag milli kl. 9 - 10:45.

Þátttökugjald

Þátttökugjöld eru eftirfarandi:

  • 2.900 kr. fyrir fullorðna (16 ára og eldri f. 2010 og fyrr) miðað við forskráningu.
  • 3.600 kr. fyrir fullorðna eftir að forskráningu líkur.
  • Ókeypis fyrir börn og ungmenni (15 ára og yngri f. 2011 eða síðar, miðað er við grunnskólaaldur)

Hlaupaleið

Rásmarkið og endamarkið er við Sundlaug Seltjarnarness í öllum vegalengdum. Í lengri vegalengdunum er hlaupið eftir göngu/hjólastígnum hringinn um nesið. Frá Suðurströnd eftir Bakkagranda, út fyrir golfvöll í Suðurnesi, með Kotagranda að Snoppu, síðan Norðurströnd heim að endamarki við sundlaug. Í 3,25 km hlaupinu er hlaupið eftir Suðurströnd og beygt inn Lindarbraut og Norðurstönd til baka þar til beygt er í átt að sundlaug að nýju.

Sjá einnig kort af leiðinni hér neðst.

Flokkaskipting

Keppt er bæði í karla- og kvennaflokki í hverri vegalengd.

Annað

Hlaupið er fjölskylduvæn skemmtun þar sem allir geta fundið sér vegalengd við hæfi. Drykkjarstöð er á miðri leið fyrir 15 km. Þátttökuverðlaun og hressing að loknu hlaupi. Fjölmargir spennandi útdráttarvinningar.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á trimmklubburinn@gmail.com