Um hlaupið

  • Vegalengdir100 km
  • Dagsetning7. ágúst 2026

Rauðavatn Ultra verður haldið í annað sinn föstudaginn og laugardaginn 7-8. ágúst 2026. Hlaupið er 90 % götuhlaup og 10 % utanvegahlaup.

Vegalengdir

Keppt er í 21,1 km / 42,2 km / 100 km (Íslandsmeistaramót) og 24 klst hlaupi þar sem reynt er að hlaupa eins marga hringi í kringum Rauðavatn (3,14 km) og fólk getur á þeim tímaramma.

Eins er keppt í 100 km hlaupi þar sem hlauparar hlaupa 100 km hringinn í kringum Rauðavatn = 32 hringir. Athugið að tímamörk eru í 100 km hlaupi = 15 klst.

Skráning

Skráning er á netskraning.is.

Hlaupanúmerin verða afhent Sportvörum 2-3 dögum fyrir hlaup (nánari dagsetning kemur fljótlega) og á Rauðavatni 1 klst fyrir start í hverri keppnisrein/vegalengd.

  • Endurgreiðsla er í boði til 26. júlí
  • Nafnabreyting er í boði fram að hlaupi

Hlaupanúmerin verða afhent Sportvörum 2-3 dögum fyrir hlaup (nánari dagsetning kemur síðar) og við Rauðavatn frá 8:00 á hlaupdag.

Staðsetning og tímasetning

Hlaupið verður ræst hjá Rauðavatni í Reykjavík (fyrir neðan Morgunblaðshúsið). Rástímar verða eftirfarandi:

Föstudagur 7. ágúst

  • Kl. 18:00 – 24 klst hlaupið
  • Kl. 23:59 – 100 km - hægari hlauparar sem ætla að klára á 12+ klst


Laugardagur 8. ágúst

  • Kl. 02:00 - 100 km - hraðari hlauparar sem ætla að klára undir 12 klst
  • Kl. 09:00 – 42,2 km
  • Kl. 12:00 – 21,1 km

ATH: 21,1 km / 42,2 km og 100 km ræsa inní braut til að klára á réttum stað eftir rétta vegalengd.


Drykkjarstöðvar

Ein drykkjarstöð verður á veginum við Rauðavatni þar sem hlaupið byrjar og verður sú stöð inní stóru tjaldi, fólk hleypur gegnum/framhjá þeirri stöð í hverjum hring og ræður hvort það stoppar til að næra sig í hverjum hring eða sjaldnar. Boðið verður uppá: vatn, orkudrykk, kók, okustykki, ávexti (banana og epli). Fara þarf inn í tjaldið til að ná sér í drykk/næringu og það getur hægt á. Hafið það í huga.

ATH: Einhverjar stærri máltíðir verða í boði fyrir 100 km og 24 klst yfir keppnina reglulega yfir hlaupið.

Reglur fyrir mismunandi vegalengdir

Allar vegalengdir
Enginn hlaupari má hafa/fá einstakling sem ekki er skráður í keppnina til að hlaupa með sér (héra/pace-a) sig í keppninni.

24 klst hlaup

  • Einn aðstoðarmaður leyfður strax frá byrjun (engin önnur aðstoð í brautinni fyrir utan drykkjarstöð).
  • 24 klst hlaupari taka með sér auka skó og eina handfarangurstösku sem geymir næringu, drykk, fatnað / auka búnað. Handfarangurstöskurnar verða gleymdar á gólfinu, fer allt eftir hversu mikið pláss verður í tjaldinu.
  • Það verður auka borð í tjaldinu meðfram veginum (einungis fyrir 24 klst hlaupara)og á því má hafa lítið box t.d. 20x20cm og geyma auka næringu sem auðveld er að grípa með sér.
  • Stopp eftir 24 klst: þegar hlaupið verður flautað af í 24 klst vegalengdinni (notum einhverskonar kallkerfi/flautu til að stoppa alla) þá taka hlauparar númerið af sér, setja í zip-lock poka (fá hann við afhendingu gagna) og leggja á jörðina þar sem þeir stoppa og setja stein/möl ofaná pokann sem tímatökumaður kemur svo og sækir.

100 km hlaup

  • Einn aðstoðarmaður leyfður strax frá byrjun (engin önnur aðstoð í brautinni) . Hlaupari má taka með sér auka skó og einn bakpoka fyrir næringu/auka búnað. Bakpokar gleymdir á gólfinu, fer allt eftir hversu mikið pláss verður í tjaldinu.
  • Það verður auka borð í tjaldinu meðfram veginum einungis fyrir 100km klst hlaupara og á því má hafa lítið box t.d. 20x20cm og geyma auka næringu (merkja þarf boxið með nafni og hlaupanúmeri).
  • Tímamörk í 100km eru 15 klst sem er 8:24 pace ef reiknað með að hlaupa í 14 klst og hvíla í 1klst í heild. Hlaupið klárast á miðnætti á laugardag. Eftir 15klst verða allir stoppaðir af

42,2 km hlaup

  • Einn aðstoðarmaður leyfður og engin aðstoð í brautinni.
  • Hlaupari má taka með sér lítið box fyrir eigin næringu og drykk sem geymdur er á auka borði á/hjá drykkjarstöðinni.
  • Ekkert annað geymt í tjaldi.


21,1 km hlaup

  • Enginn aðstoðarmaður
  • Engin aðstoð í brautinni
  • Ekkert geymt í tjaldi

Nánari upplýsingar

Sigurjón Ernir Sturluson, ultraform@ultraform.is