Reykjavík Trail hefst í Elliðaárdalnum, við Rafstöðvarhúsið, þann 14. júlí 2026 og býður upp á einstaka utanvega upplifun í fallegu og fjölbreyttu umhverfi. Hér sameinast náttúra, áskorun og hlaupagleði – aðeins örfáum mínútum frá miðborg Reykjavíkur.
Leiðirnar henta bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref í utanvegahlaupum og þeim sem vilja takast á við meiri áskoranir.
Vegalengdir og hlaupaleiðir
Kort af leiðunum er neðst á þessari síðu.
- 5 km – Fyrir byrjendur
Stutt og skemmtileg leið fyrir þá sem vilja prófa trail í fyrsta sinn eða njóta hlaupsins á sínum hraða. - 15 km – Fyrir vana hlaupara
Fjölbreytt og krefjandi leið með góðri blöndu af hraða, hækkunum og trail upplifun. - 25 km – Fyrir reynda hlaupara
Lengsta og krefjandi leiðin með meiri vegalengd, meiri hækkun og alvöru áskorun
Þátttökugjald og skráning
Skráning fer fram á netskraning.is. Þátttökugjöld eru eftirfarandi:
- 5 km: 5.990 kr
- 15 km: 9.990 kr
- 25 km: 13.990 kr
Innifalið í skráningu er: Hlaupanúmer, tímataka, verðlaun fyrir efstu sæti, einstök stemning og öflug trail upplifun
Öryggi og ábyrgð
Reykjavík Trail er utanvegahlaup og hlaupahaldari ítrekar mikilvægi þess að fara varlega í hlaupinu sem er með misjöfnu undirlagi. Hlauparar taka þátt í hlaupinu á eigin ábyrgð. Framkvæmdaaðilar eru á engan hátt ábyrgir fyrir skaða sem keppendur verða hugsanlega fyrir eða valda öðrum á meðan á þátttöku í hlaupinu stendur. Þátttakandi staðfestir skilning og samþykki á þessum skilmálum með því að skrá sig í hlaupið og að sækja rásnúmer sitt.
