Um hlaupið

  • Vegalengdir20,5 km
  • Dagsetning8. ágúst 2026

Sjónarhóll Trail Run verður haldið laugardaginn 8. ágúst, 2026 kl. 12:00. Hlaupið hefst á Hellissandi og liggur hlaupaleiðin m.a. á fornri gönguleið, upp á Sjónarhól og til baka á Hellissand, 21 km. Hlaupið hentar byrjendum í hlaupi sem og reyndum hlaupurum.

Hlaupaleið

Hlaupið er 21 km með 397 m hækkun og byrjar við Útgerðina á Hellissandi. Hlaupaleiðin liggur gegnum Prestahraun, Eysteinsdalsleið og upp á Sjónarhól (400 m hæð) og til baka. Hlaupið er á malarvegi 60%, graslendi 20% og hrauni 20%. Almennir hlaupaskór duga vel en ekki verra ef sóli er grófur. Tímamörk eru 4 klst. (rásmark lokar kl. 16:00). Erfiðleikastig hlaupaleiðarinnar er 0 ITRA stig og gefur hlaupið ITRA stig.

Leiðin verður merkt á áberandi hátt og verður tímatökuhlið staðsett á toppi Sjónarhóls. Vegna öryggis og brautarvörslu er mikilvægt að allir hlauparar hlaupi í gegnum hliðið en varsla verður á toppi Sjónarhóls ásamt ljósmyndara.

Sjá kort af leiðinni neðst á þessari síðu.

Skráning

Þátttökugjald er 9.000 kr. Skráning á netskraning.is. Innifalið í skráningu:

  • Keppnisnúmer, brautarvarsla og tímataka
  • Buff með merki hlaupsins
  • Drykkjarstöðvar við Rauðhól (7 og 14 km)
  • Keppendur fá frítt í sund í sundlaug Snæfellsbæjar í Ólafsvík á hlaupadegi.
  • Þurrsalerni á staðnum
  • Ljósmyndari á Sjónarhóli
  • Hressing fyrir keppendur að loknu hlaupi við Útgerðina á Hellissandi
  • Sjúkragæsla við mark

Hlaupagögn verða afhent í Útgerðinni 7. ágúst frá kl. 17:00-19:00 og á hlaupadegi þann 8. ágúst frá kl. 9:00 til 11:30. Einnig verður í boði að nálgast hlaupagögn frá kl. 15-18 í Reykjavík (nánar auglýst síðar). „Trakk“ af leiðinni fyrir síma eða úr verður sent út fyrir hlaup.

Verðlaun

Verðlaun afhent fyrir efstu þrjú sætin í karla- og kvennaflokki fljótlega eftir að fyrstu keppendur koma í mark. Allir sem koma í mark eiga möguleika á veglegum útdráttarverðlaunum.

Nánari upplýsingar

Facebook síða
Instagram síða: Sjónarhóll Trail Run

Skipuleggjendur hlaupsins: Hlaupahópur Snæfellsbæjar. Nánari upplýsingar fást í netfanginu hlaupahopursnb@gmail.com

Ari Bent Ómarsson s. 866-6939 ari.bent@gamail.com
Helga Jóhannsdóttir s. 847-0194 helgajoh22@gmail.com