Um hlaupið

  • Vegalengdir22 km
  • Dagsetning20. júní 2026

Snæfellsjökulshlaupið verður haldið 20. júní n.k og er þetta er í fimmtánda skiptið sem hlaupið er haldið. Ræst verður frá Arnarstapa kl. 12:00. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður við 350 manns. Hlaupið veitir ITRA stig.

Hlaupaleiðin

Hlaupaleiðin er um 22 km. Langstærsti hluti hlaupsins er malarvegur. Fyrstu 8 km þarf að hlaupa upp í móti í c.a. 700 metra hæð. Síðan tekur hlaupaleiðin að smá lækka þar til komið er til Ólafsvíkur. Hlauparar eiga von á að þurfa kljást við snjó og drullu frá 1 km til 7 km af leiðinni, en fer það eftir því hvað veturinn var snjóþungur. Hlauparar fá á leiðinni að upplifa einstaka náttúrufegurð og að öllu ógleymdu allri þeirri orku sem Snæfellsjökull býr yfir.

Tvær drykkjarstöðvar verða á leiðinni á c.a. 5 km millibili sem Björgunarsveitin Lífsbjörg mun sjá um.

Á Arnarstapa verður bíll þar sem hlauparar hafa kost á að skilja eftir auka hluti og fatnað sem verður afhendur í Sjómannagarðinum í Ólafsvík. Einnig tekur Björgunarsveitin við fatnaði við drykkjarstöðvar á hlaupaleiðinni og verður afhentur í Sjómannagarðinum að hlaupi loknu.

Frá hlaupinu 2021 - Hlauparar hálfnaðir og á leið niður í Ólafsvík
Frá hlaupinu 2021 - Hlauparar hálfnaðir og á leið niður í Ólafsvík
Staður og tímasetning
  • Hlaupið verður ræst kl 12:00 frá Arnarbæ (Svartur torfbær) við veginn á Arnarstapa þaðan sem hlaupið er yfir Jökulháls til Ólafsvíkur á Snæfellsnesi.
  • Rúta verður í boði fyrir þá sem vilja frá Ólafsvík til Arnarstapa og mun hún leggja af stað kl. 10:45 frá íþróttahúsinu í Ólafsvík og kostar 2.500 kr. Ólafsvík er um 2,5 klst. akstur frá Reykjavík.
Skráning

Skráning fer fram á netskraning.is. Skráningargjald er 8.000 kr.

Flokkaskipting
  • 60 ára og eldri
  • 50 - 59 ára
  • 40 - 49 ára
  • 39 ára og yngri

Verðlaun

Verðlaun verða veitt fyrir bestu tímana í hverjum flokki og einnig verður fjöldi útdráttarverðlauna.

Nánari upplýsingar

Ingunn Ýr Angantýsdóttir s: 858 7670 og netfangið sjhlaup@gmail.com 
Sigrún Ólafsdóttir s: 894 2446 og netfangið sjhlaup@gmail.com