Sólstöðuhlaupið fer fram í Vaðlaheiði við Eyjafjörð þann 20. júní 2026. Ræst verður frá íþróttavellinum á Svalbarðseyri og allar vegalengdir enda við Skógarböðin. Hlaupið er haldið af Ungmennafélaginu Æskunni og Björgunarsveitinni Týr í fjáröflunarskyni í samstarfi við Skógarböðin.
Sjá myndir úr prufuhlaupinu sem var haldið 14. september 2024.
Vegalengdir
Boðið er upp á þrjár vegalengdir og eru báðar vegalengdir viðurkenndar af iTRA (til að fá iTRA stig þarf að skrá fullt nafn og kennitölu við skráningu):
- 14,2 km með 302m hækkun
- 26 km með 753m hækkun
- 38 km með 1.421m hækkun
Kort af hlaupaleiðunum eru neðst á þessari síðu.
Skráning og afhending gagna
Skráning í hlaupið er á netskraning.is. Afhending hlaupagagna fer fram í Sportver Glerártorgi.
Rástímar
Stefnt verður að því að ræsa á eftirfarandi tímum en tímasetningar eru ekki staðfestar og geta því breyst.
- 38 km kl. 19:15
- 26 km kl. 20:15
- 14 km kl. 21:00
Verðlaun og keppnir
Eftirfarandi verðlaun eru í boði:
- Verðlaun fyrir 1.–3. sæti í öllum vegalengdum.
- Peningaverðlaun í 38 km leiðinni.
- Segment-Keppni: Raninn (14 km), Línuvegur (26 km), Skólavarða (38 km)
- Útdráttarverðlaun fyrir alla sem ljúka hlaupinu, Útdráttarverðlaunin verða einungis afhent á hlaupadegi í Skógarböðunum.
Rútuferðir
- Rútur fara frá Glerártorgi í rásmarkið á Svalbarðseyri.
- Rútuferðir verða frá Skógarböðunum yfir á Glerártorg frá kl 23-02
Nánari upplýsingar
- Sólstöðuhlaupið er styrktarhlaup, allur ágóði af hlaupinu, ef einhver verður, mun renna til Ungmennafélags Æskunnar á Svalbarðsströnd og Björgunarsveitarinnar Týs.
- Nánari upplýsingar á heimasíðu hlaupsins
- Netfang hlaupsins: solstoduhlaup@gmail.com
- Tengiliðir: Anna: 662-0666 og Arnar: 662-2891
