Stjörnuhlaupið í Garðabæ heitir nú Stjörnuhlaup Sport24 og fram laugardaginn 17. maí 2025 kl. 10. Hlaupið hefur verið árlegur viðburður í Garðabæ síðan 2012 sem sameinar keppnisanda, gleði, hreyfingu og útivist. Hlaupahópur Stjörnunnar er framkvæmdaraðili hlaupsins.
Boðið er upp á fjórar vegalengdir 2 km, 11 km, 17 km og 22 km sem henta bæði byrjendum og reyndari hlaupurum. Allar hlaupaleiðirnar liggja um fallega stíga Garðabæjar megin í Heiðmörk í einstöku landslagi og umhverfi. Stjörnuhlaup Sport24 er almenningshlaup og fyrir alla sem vilja hreyfa sig og njóta fallegrar náttúru í leiðinni.
Staðsetning og tími
- Hlaupið byrjar og endar við íþróttahúsið Miðgarð í Garðabæ
- Stjörnuhlaup Sport24 er utanvegahlaup í Heiðmörk
- Fjórar vegalengdir 2 km, 11 km, 17 km og 22 km (tveir 11 km hringir) eru í boði.
- 11 km, 17 km og 22 km veita ITRA stig
- Hlaupið byrjar kl. 10:00
Þátttökugjald, skráning og afhending gagna
Skráning fer fram á netskraning.is.
- 11 km 5.500. Þátttökugjald hækkar í 6.500 eftir 10. maí
- 17 km 6.000. Þátttökugjald hækkar í 7.000 eftir 10. maí
- 22 km 6.500. Þátttökugjald hækkar í 7.500 eftir 10. maí
- 2 km 3.000. Skemmtiskokk fyrir alla aldurshópa
Afhending gagna verður föstudaginn 16. maí frá kl. 16:00 - 18:00 í verslun Sport24, Miðhrauni Garðabæ og
laugardaginn 17. maí frá kl. 8:00 - 9:00 í íþróttahúsinu Miðgarði í Garðabæ.
Drykkjarstöð
- Drykkjarstöð er á leiðinni við nýja skátaheimilið í Heiðmörk (tæpir 6 km frá Miðgarði).
- Önnur drykkjarstöð er við gaflinn að austanverðu við Miðgarð á 22 km vegalengdinni, þegar hlauparar eru hálfnaðir.
- Á 17 km vegalengdinni koma hlauparar aftur að drykkjarstöðinni við skátaheimilið.
Hlaupaleiðin
Hægt er að sjá kort af leiðinni neðst á þessari síðu (hringur hlaupinn réttsælis).
Undirlag allra stíga á öllum vegalengdum er ekki torfært, heldur þjappaðir moldarstígar eins og eru víðast hvar í Heiðmörk, hestastígar að hluta og góðir malarstígar.
Framkvæmdaraðili (Hlaupahópur Stjörnunnar) biður þátttakendur að skilja ekkert eftir sig eins og umbúðir og annað í brautinni. Hægt er að losa sig við það á drykkjarstöðinni við skátaheimilið/drykkjar stöð í Heiðmörk eða á marksvæðinu.
Hlaupaleiðir 11 km og 22 km
Allar leiðirnar 11 km, 17 km og 22 km eru viðurkenndar af ITRA og hlauparar sem klára innan 3 klst fá ITRA stig fyrir hlaupin, sem meðal annars gilda fyrir Laugavegshlaupið.
Rás- og endamark er við íþróttahúsið Miðgarð, sem stendur við golfvöllinn í Vetrarmýrinni. Hlaupaleiðin liggur í landi Vífilsstaða og Heiðmörk og m.a. um útivistarskógana í Smalaholti og Sandahlíð. Brautin er í hækkunarferli um hóla og hæðir fyrstu 5,5 km, með hæsta punkt í 150 m hæð frá Miðgarði. Hæsti punkturinn er í hlíðinni ofan við nýja skátaheimilið. Leiðin þaðan er nánast öll niður á við og skörp og löng lækkun er niður nýja stíginn að Vífilsstaðavatni. Samanlögð hækkun brautarinnar á 11 km er um 200 m.
Ný hlaupaleið 17 km
Nýja 17 km leiðin liggur líka að nýja skátaheimilinu Vífilsbúð í Heiðmörk á sömu braut/leið eins og 11 km og 22 km brautirnar. Í stað þess að beygja til hægri við skátaheimilið í átt að Vífilsstaðavatni, er farið til vinstri inn á nýjan stíg við skátaheimilið og hlaupið suður-austur að Heiðmerkurvegi og meðfram honum, og komið efst inn á göngustíginn við Vífilsstaðahlíð þar sem nýju bílastæðin eru. Hlaupið er niður eftir og meðfram Vífilsstaðahlíð og beygt til hægri upp grófa malarbrekku í átt að skátaheimilinu aftur þar sem vatnsstöðin er. Þar sameinast 17 km leiðin aftur við 11 km leiðina þegar beygt er til vinstri í átt að Vífilsstaðavatni á leið í Miðgarð. Þessi nýi hringur eða „hjartað“ á mynd er 6 km að drykkjar stöðinni aftur. Heildarhækkun er 330 metrar.
Skemmtiskokk 2 km
Skemmtiskokkið er hlaupið/gengin á malbikuðum göngustígum. Byrjað er og endað er við íþrótthúsið Miðgarð. Skemmtskokkið er eitthvað fyrir alla og á hvaða aldri sem er vini, vinahópa, mömmur og pabbar með kerrur og alla sem vilja taka þátt í hlaupaviðburði og hreyfa sig. Allur ágóði af skemmtskokkinu rennur til Minningar- og styrktarsjóðs Arnarins sem styður börn og unglinga sem misst hafa náin ástvin.
Aðrar upplýsingar
Aðstaða fyrir þátttakendur er eins góð og best verður á kosið. Gott aðgengi að salernum, örugg geymsla fyrir verðmæti á meðan hlaupið stendur, upphitun fyrir hlaup og teygjur eftir hlaup við kjöraðstæður. Næg bílastæði eru við Miðgarð. Fyrir þá sem kjósa, er einnig hægt að skola af sér eftir hlaup. Að loknu hlaupi er boðið upp á veitingar fyrir þátttakendur við kjöraðstæður.
Nánari upplýsingar: hlaupahopur@stjarnan.is eða Agnar, sími 896 8519
Fyrirvari
Skráðir hlauparar sem taka þátt í Stjörnuhlaupi Sport24 eru alfarið á eigin ábyrgð og börn eru á ábyrgð foreldra. Framkvæmdaraðili hlaupsins Hlaupahópur Stjörnunnar (Stjarnan), getur á engan hátt verið ábyrgur fyrir skaða sem skráðir hlauparar hugsanlega verða fyrir eða valda öðrum meðan á þátttöku í hlaupinu stendur. Jafnframt áskilur framkvæmdaraðili sér rétt til að breyta leiðum ef öryggi þátttakenda er ógnað og ef ómöguleiki er til staðar. Með skráningu í þennan viðburð staðfestir þátttakandi skilning á þessu og samþykkir þennan skilmála ásamt öðrum almennum skilmálum hér á síðunni.