Þátttökugjald

  • 4 km1.000 kr
  • 10 km - 14 ára og yngri1.500 kr
  • 10 km - 15 ára og eldri3.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir4 km, 10 km
  • Dagsetning21. maí 2022
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Stjörnuhlaupið fer fram síðdegis laugardaginn 21. maí og líkt og í fyrra verður hlaupið ræst kl. 16:00. Boðið verður upp á tvær hlaupaleiðir, annars vegar 10 km hring og hins vegar 4 km hring (ræst stuttu eftir 10 km hlaupið).

Hlaupið hefur nú eignast nýja stórglæsilega heimahöfn – Miðgarð sem er hið nýja glæsilega fjölnota íþróttahús Garðbæinga. Báðar vegalengdir verða ræstar frá Miðgarði og enda þar. Aðstaða fyrir þátttakanendur er eins góð og hugsast getur. Gott aðgengi að salernum, hægt að geyma verðmæti á öruggum stað meðan hlaupið er, upphitun fyrir hlaup og teygjur eftir hlaup við kjöraðstæður. Fyrir þá sem það vilja er einnig hægt að skola af sér eftir hlaup.

Líkt og í fyrra fer hlaupið svo til alfarið fram á göngustígum Garðabæjar.

Kíktu á viðtal við forsvarsmenn hlaupsins frá því í fyrra.

Skráning og þátttökugjald

Skráning í hlaupið fer fram hér á hlaup.is. Skráning verður opin til kl. 24 föstudaginn 20. maí nk.

Keppnisgögn verða afhent í Miðgarði föstudaginn 20. maí nk. milli 16:00 og 19:00 og á hlaupdegi  á milli 12:00 og 15:00. Einnig verður hægt að skrá sig í hlaupið í Miðgarði á hlaupdegi.

Skráningargjald í 10 km:

  • 3.000 kr. 15 ára og eldri
  • 1.500 kr. 14 ára og yngri
  • Fjölskylduskráning (pakki) – 6.000 kr.  Notið kóðann STJORNU-FJOLSK í reitinn "Afsláttarkóði" þegar þið skráið ALLA fjölskylduna í einu.

Skráningargjald í 4 km hlaupið er 1.000 kr.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar um hlaupið er að finna á Facebook síðu hlaupsins.