Color Run 2026 verður haldið á sama tíma á stað stað og 2025; 15. ágúst í Kópavogsdal, en sú staðsetning hefur slegið í gegn.
EINTÓM HAMINGJA
Sem litahlaupari í The Color Run verður þú, ásamt þúsundum annarra þátttakenda, lituð frá toppi til táar við hvern kílómetra sem þú klárar. Í hverju litahliði verður tekið á móti þér með tónlist, skemmtun og nýjum lit. Þetta snýst ekki um að hlaupa 5 kílómetra á sem skemmstum tíma heldur að hlaupa á þeim hraða og tíma sem þér finnst hæfilegt og gaman. The Color Run er nefnilega ekki kapphlaup heldur hlaup þar sem þúsundir þátttakenda skemmta sér konunglega á meðan þeir verða hjúpaðir lit frá toppi til táar. Í lok hvers kílómetra er hlaupið í gegnum litastöð með tónlist, skemmtun og nýjum lit og við endamarkið keyrir allt um koll með risavaxinni endamarkshátíð þar sem litadýrðin verður að ógleymanlegri upplifun. Þetta verða hamingjusömustu og skemmtilegustu 5 kílómetrar sumarsins!
VERÐIÐ HÆKKAR REGLULEGA
Hægt er að kaupa miða á tix.is.
Tryggðu þér miða í tíma á lægra verði því verðið hækkar reglulega eftir því sem nær dregur viðburði. Í boði eru almennir miðar, barnamiðar, fjölskyldupakkar og hópapakkar. Öllum miðum fylgir aðgangur í hlaupið, Color Run hlaupabolur og litapoki.
TVÆR GRUNN MIÐATÝPUR
- Almennir miðar eru fyrir einstaklinga 9 ára og eldri
- Barnamiðar eru fyrir börn 3-8 ára, 2 ára og yngri fritt þar sem miðað er við fæðingarárið.
PAKKARNIR
- Pakki 1: Hópapakki inniheldur fjóra almenna miða
- Pakki 2: 2+2 fjölskyldupakki inniheldur tvo almenna miða og tvo barnamiða (3-8 ára, frítt fyrir 2 ára og yngri)
- Pakki 3: 3+1 fjölskyldupakki inniheldur þrjá almenna miða og einn barnamiða (3-8 ára frítt fyrir 2 ára og yngri)
Allir pakkarnir gefa sem samsvarar um 15% afslátt af listaverði á hverjum tíma.
BOLURINN VEITIR AÐGANG AÐ SVÆÐINU
Color Run bolurinn er aðgöngumiðinn á viðburðinn og nauðsynlegt er að vera í bolnum þegar komið er í hlaupið. Hlaupagögn eru sótt í Color Run búðina í vikunni fyrir viðburð þar sem miðahafar velja sér bolastærð. Tilkynnt eru um staðsetningu og opnunartíma búðarinnar 10 dögum fyrir viðburð.
OKKAR MARKMIÐ
Okkar markmið er að The Color Run færi fólk saman og geri heiminn hamingjusamari. Við köllum The Color Run hamingjusamasta hlaup í heimi vegna þess að hlaupið færir saman vini og vandamenn í einstaka skemmtun og hátíð. Við setjum hamingjuna í forgrunn. Lífið snýst um ánægju og að líða vel. Þess vegna skal The Color Run vera hamingjusamasta hlaupið á jörðinni.
ÖLL VELKOMIN - ÖLL!
The Color Run er fyrir alla, konur með hár og kalla með skalla, allt frá 2ja ára til 80 ára (jafnvel 102 ára). Sumir hlaupa til að koma í gang betri lífsstíl á skemmtilegan hátt á meðan aðrir hlaupa bara til að skemmta sér með vinum sínum. Þátttakendur geta hlaupið einir sér eða í smærri hópum og sumir hlaupa með ákveðinn tilgang. Hvort sem þú ert gamall brokkari eða afreksíþróttamaður þá mun The Color Run verða eftirminnilegustu og litríkustu 5 kílómetrarnir í þínu lífi!
