Um hlaupið

  • Vegalengdir10 km
  • Dagsetning10. september 2026

Vatnsendahlaup HK verður haldið í þriðja sinn fimmtudaginn 10. september kl. 18 – Hlaupið verður frá Kórnum við Vallakór 12 í Kópavogi.

Hlaupið er 10 km utanvegahlaup um fjölbreytta stíga við jaðar Heiðmerkur, þar sem hlauparar fá tækifæri til að kynnast leiðum sem fáir hafa hlaupið áður. Boðið verður upp á tímatöku og drykkjarstöð er á leiðinni.

Skráning og afhending gagna

Skráning er á netskraning.is. Hægt verður að sækja hlaupagögn í Hlaupaár frá 11-18 vikuna fyrir hlaupið.

Skráningargjöld verða ekki endurgreidd en hægt verður að gera nafnabreytingar til hlaupið byrjar. Skráningu lýkur 10. september 2026 kl. 16 eða þegar hlaupið er orðið fullt.

Verð: 3.900 kr

Innifalið í skráningu er:

  • Keppnisnúmer
  • Tímataka
  • Brautarvarsla
  • Drykkjarstöð með Powerade, vatni, banana o.fl.
  • Salernisaðstaða fyrir og eftir hlaup í Kórnum

Hlaupaleið

Hlaupið hefst við Kórinn og liggur upp að Guðmundarlundi og áfram að Vatnsendaborg. Þaðan tekur við fjölbreytt leið um stíga við jaðar Heiðmerkur, niður í átt að Elliðavatni. Leiðin liggur síðan aftur upp Vatnsendahlíð og niður að Kórnum þar sem hlaupið endar.

Hægt er að sjá kort af leiðinni neðst á þessari síðu eða á Strava.

Keppendur fá ITRA stig fyrir hlaupið.

Verðlaun

Verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í karla og kvennaflokkum ásamt útdráttarverðlaunum.

Annað

Salernisaðstaða fyrir og eftir hlaup er í Kórnum.

Fylgist með á samfélagsmiðlum:

Skipuleggjendur

Hlaupahópur HK, netfang: orvars@gmail.com
Hlaupstjóri: Örvar Steingrímsson, sími 665-6217