Vatnsmýrarhlaupið verður haldið í 31. sinn fimmtudaginn 6. ágúst 2026. Hlaupið verður í Vatnsmýrinni og Skerjafirði eins og undanfarin ár. Upphaf og endir verður í nágrenni Háskóla Íslands og skráning verður á Háskólatorgi á hlaupadag. Veitt verða verðlaun fyrir sjö aldursflokka og verður notast við flögutímatöku.
Skoðaðu myndir frá hlaupinu 2025, 2024, 2023, 2021, 2019, 2018, 2017 og 2016
Tímasetning
Hefst kl. 20 við Háskóla Íslands.
Vegalengd
5 km með flögutímatöku. Hlaupaleiðin er löglega mæld af FRÍ.
Flokkaskipting
Bæði kyn
- 14 ára og yngri
- 15-19 ára
- 20-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 - 69 ára
- 70 ára og eldri
Skráning og verð
Skráning fer fram á hlaup.is til kl. 22:00 miðvikudaginn 5. ágúst en einnig er hægt að skrá sig milli kl. 17-19:30 á Háskólatorgi á hlaupdag. Skráningargjald er 2.500 kr. Hægt er að óska eftir þátttökumedalíu þar til miðnættis þriðjudaginn 4. ágúst og er verðið þá 2.900 kr.
Athugið að ekki verður posi á staðnum.
Afhending númera verður milli kl. 17-19:45 á Háskólatorgi á hlaupdag.
Verðlaun
Þátttökumedalíur eru fyrir alla 14 ára og yngri og aðra sem óska eftir því. Vegleg útdráttarverðlaun eru og verðlaun fyrir 1. sæti í hverjum flokki.
Hlaupaleiðin
Hlaupið er í nágrenni Vatnsmýrar og Skerjafjarðar. Hlaupaleiðin er tiltölulega flöt. Sjá einnig meðfylgjandi kort af hlaupaleiðinni hér neðst í þessari lýsingu.
Annað
Brautarvarsla er á öllum helstu götuhornum, einnig verður hjólreiðamaður á undan fyrstu mönnum. Merkingar verða á kílómeters fresti.
Hið vinsæla ávaxtahlaðborð verður á sínum stað auk útdráttarverðlauna.
Nánari upplýsingar: Laufey Sigrún Haraldsdóttir, laufeys@gmail.com
