Vatnsnes Trail Run er utanvegahlaup á Hvammstanga á Norðurlandi vestra og verður haldið í annað skipti föstudaginn 24. júlí 2026. Hlaupið fer fram í einstakri náttúru þar sem fjall mætir sjó og leiðirnar liggja um skóga, kindagötur, mólendi, meðfram lækjum og yfir opið útsýni yfir Húnaflóa og nærliggjandi fjöll.
Hlaupaleiðirnar
Boðið er upp á þrjár hlaupaleiðir í náttúrulegu og fjölbreyttu landslagi á Vatnsnesi. Báðar lengri hlaupaleiðirnar eru að mestu á stígum, vegarslóða og kindagötum en á stuttum köflum í mýrlendi og mólendi.
10 km leið (~513 m hækkun)
Hlaupið er frá Félagsheimilinu á Hvammstanga upp með Syðri-Hvammsánni upp í Kirkjuhvamm og ánni fylgt áfram upp í fjalllendið upp fyrir Fossa. Þar er stefnan tekin yfir ána til suðurs upp á Efstaberg með fallegu útsýni yfir Hvammstanga og einnig bæði inn Miðfjörð og Hrútafjörð og út á Húnaflóann þegar komið er alla leið upp. Hlaupaleiðin liggur svo áfram aðeins upp á við og beygir svo til norðurs fram hjá Snældukletti þar sem drykkjarstöðin er. Haldið er áfram yfir í undurfagran Hvamminn með sínum fallegu lækjum og smáfossum.
Úr Hvamminum liggur leiðin niður á við og stefnan tekin í áttina að sjónum meðfram Ytri- Hvammsánni, hlaupið áfram á kindagötu niður holtin og móana, í gegnum skógræktina fyrir ofan tjaldsvæðið í Kirkjuhvammi og endað með góðum niðurspretti í markið við Félagsheimilið!
20 km leið (~826 m hækkun)
Hlaupaleiðin er í byrjun sú sama og í 10 km hlaupinu en haldið er svo áfram til norðurs úr Hvamminum og gömlum vegarslóða fylgt út og niður á fjallveginn sem liggur upp að Káraborg.
Þá tekur við hækkun upp veginn að Káraborginni sem er falleg stuðlabergsklettaborg og frábært útsýni þaðan yfir firði og fjöll. Áfram er haldið upp að Fjalagilslæk þar sem drykkjarstöðin er.
Þar er fallegt fjallaútsýni og bera Strandafjöllin við sjóndeildarhring í norðri. Frá drykkjarstöðinni liggur leiðin niður í móti og á gömlum vegarslóða til baka yfir í Hvamminn og komið á sömu endaleið og 10 km hlaupið meðfram Ytri- Hvammsánni, í gegnum skógræktina fyrir ofan tjaldsvæðið niður í Kirkjuhvamm og endað í markinu við Félagsheimilið!
Erfiðleikastig 20 km leiðarinnar er 1 ITRA stig.
Fjölskylduhlaup (~1,5 km)
Fjölskylduhlaup, tæpir 1,5 km, verður einnig í boði og byrjar það og endar við Félagsheimilið á Hvammstanga og er frítt fyrir alla í hlaupið og glaðningur að hlaupi loknu fyrir börnin! Öll börn sem skrá sig í hlaupið fá hlaupanúmer sem þarf að sækja fyrir hlaup.
- Fjölskylduhlaup 1,5 km: Ræst er í hlaupið við Félagsheimilið á Hvammstanga kl. 13
- 20 km: Ræst við Félagsheimilið kl. 14
- 10 km: Ræst við Félagsheimilið kl. 15
Skráning og þátttaka
Skráning hjá netskraning.is skráningu lýkur kl. 11 á hlaupdegi.
Skráningargjald:
- Fjölskylduhlaup: Ókeypis
- 10 km: 6.500 kr.
- 20 km: 8.500 kr.
Þátttakendur fá frítt í sund í Íþróttamiðstöð Húnaþings vestra að hlaupi loknu gegn framvísun rásnúmera. Afhending gagna verður auglýst síðar. Innifalið í gjaldi er tímataka, brautarvarsla, drykkjarstöðvar og hressing eftir hlaup.
Verðlaun
Vegleg útdráttarverðlaun verða veitt og einnig verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í karla og kvennaflokkum í báðum vegalengdum. Léttar veitingar verða í boði fyrir alla þátttakendur í 10 og +20 km hlaupunum að loknu hlaupi.
Staðsetning og aðgengi
Hlaupið fer fram á Hvammstanga á Vatnsnesi. Góðir gistimöguleikar eru á tjaldsvæðinu í Kirkjuhvammi, á Hvammstanga og í nágrenninu.
Nánari upplýsingar
Fylgstu með á Facebook-síðunni og @vatnsnestrailrun á Instagram.
Netfang: vatnsnestrailrun@gmail.com
