Vestmannaeyjahlaup verður haldið laugardaginn 4. september.
Vegalengdir
Boðið verður upp á 5 km og 10 km. Leiðin er mjög falleg og skemmtileg.
Hlaupaleiðin og tímasetningar
Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin kl. 13. Sameiginleg upphitun hefst kl. 12:35. Kort af hlaupaleiðinni er aftast í þessari lýsingu.
Þátttökugjöld og skráning
Forskráningu lýkur kl. 14:00 föstudaginn 3. september. Ekki verður tekið á móti skráningum á hlaupdag.
Keppnisnúmer og gögn eru afhent milli kl. 18-20 föstudagskvöldið 3. september eða morguninn fyrir hlaup í Íþróttamiðstöðinni.
Eitt þátttökugjald 3.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2006 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt í hlaupið.
Verðlaun
Vegleg verðlaun verða fyrir fyrstu þrjú sætin í kvenna og karlaflokki í 5 og 10 km.
Verðlaun í 5 km.
- 1.sæti 50.000 kr.
- 2.sæti 25.000 kr.
- 3.sæti 15.000 kr.
Verðlaun í 10 km.
- 1.sæti 100.000 kr.
- 2.sæti 50.000 kr.
- 3.sæti 25.000 kr.
Sú nýjung verður í ár að keppt er einnig í aldursflokkum og eru einnig veitt aldursflokkaverðlaun.
- 14 ára og yngri
- 15-19 ára
- 20-29 ára
- 30-39 ára
- 40-49 ára
- 50-59 ára
- 60 ára og eldri
Fæðingarár segir til um aldurshóp sem keppendur tilheyra, ekki fæðingardagur.
Búningsaðstaða
Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.
Nánari upplýsingar
Þú getur líka fylgst með hlaupinu á Facebook og á vef hlaupsins, www.vestmannaeyjahlaup.is.
Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála.
Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.