Þátttökugjald

  • 5 km - 15 ára og yngri (f. 2005 og síðar)0 kr
  • 5 km - 16 ára og eldri (f. 2004 og fyrr)3.000 kr
  • 10 km - 15 ára og yngri (f. 2005 og síðar)0 kr
  • 10 km - 16 ára og eldri (f. 2004 og fyrr)3.000 kr

Um hlaupið

  • Vegalengdir5 km, 10 km
  • Dagsetning5. september 2020
Sjá úrslit Myndasafn úr hlaupinu

Vestmannaeyjahlaup verður haldið laugardaginn 5. september.

Vegalengdir

Boðið verður upp á 5, 10 km. Leiðin er mjög falleg og skemmtileg.

Hlaupaleiðin og tímasetningar

Rásmark verður við Íþróttamiðstöðina og hefjast bæði hlaupin kl. 13. Sameiginleg upphitun hefst kl. 12:35. Kort af hlaupaleiðinni er aftast í þessari lýsingu.

Þátttökugjöld og skráning

Forskráningu lýkur kl. 14:00 föstudaginn 4. september. Ekki verður tekið á móti skráningum á hlaupdag.
Keppnisnúmer og gögn eru afhent milli kl. 18-20 föstudagskvöldið 4. september eða morguninn fyrir hlaup í Íþróttamiðstöðinni.

Eitt þátttökugjald 3.000 kr er í hlaupið, óháð vegalengd. Hlauparar fæddir 2005 og síðar (15 ára og yngri) fá frítt í hlaupið.

Frítt er í Herjólf fyrir einstaklinga (ekki bíla) fram og til baka (150 frímiðar í boði og ekki er hægt að breyta í aðrar ferðir). Athugið að það er grímuskylda í Herjólfi.

Ferðirnar fyrir hlaupara eru kl. 10:45 frá Landeyjarhöfn og kl. 17:00 frá Vestmannaeyjum. Listi með nöfnum þeirra sem panta Herjólfsferð verður í Landeyjarhöfn og í Vestmannaeyjum þannig að nóg er að sýna skilríki til að komast í ferðina.

Verðlaun

Veitt eru verðlaun fyrir fyrsta karl og fyrstu konu í hverri vegalengd. Einnig verða veitt glæsileg útdráttarverðlaun.

Búningsaðstaða

Íþróttahúsið verður opið fyrir og eftir hlaup og hægt er að fara í sund þar og er það innifalið í gjaldinu.

Nánari upplýsingar

Þú getur líka fylgst með hlaupinu á Facebook og á vef hlaupsins, www.vestmannaeyjahlaup.is.
Allur ágóði af hlaupinu rennur til góðgerðarmála.
Upplýsingar veitir Sigmar Þröstur Óskarsson í síma 895-3339 eða Magnús 897-1110.