Hlaupasumarið mitt: Arnar Karlsson úr Hlaupahópi FH með 39 hlaup á blaði

birt 29. mars 2017

Arnar Karlsson, 47 ára vélfræðingur úr Hlaupahópi FH er næstur í röðinni til að opinbera hlaupasumarið sitt á hlaup.is. Það var Vigfús Eyjólfsson úr Frískum Flóamönnum skoraði á Arnar í síðustu viku.

Í byrjun 2011 keypti Arnar sér hlaupabretti sem hann notaði mjög stopult til að byrja með. Takmarkið var að hlaupa 5 km undir 30 mínútum sem gekk mjög brösulega framan af. Allt fór hinsvegar að ganga betur eftir að Arnar uppgötvaði að hlaupabrettið var fast í halla!

„Í febrúar 2013 tók ég þátt í 5 km hlaupaseríu FH-Actavis, sprakk þvílíkt í hlaupinu eftir aðeins 800 metra en í aðdragandanum hafði ég aðeins hlaupið á bretti og í allri gleðinni átti ég erfitt að kunna mér hóf.

Þetta varð kveikjan mín að útihlaupum en ég skráði mig í hlaupahóp FH strax eftir hlaupið, þar með fór allt af stað," segir Arnar sem annars á engan bakgrunn í hreyfingu og gat ekki hlaupið á milli ljósastaura í upphafi árs 2011. „Ég er í vaktavinnu, hlaup sem eru haldin á kvöldin á virkum dögum passa ekki alltaf inn þar sem ég get verið fastur í vinnunni. Þetta eru þau hlaup sem ég stefni á svo lengi sem þau hitta á dagvakt hjá mér." Það verður ansi mikið að gera hjá Arnari ef hann ætlar að ná markmiðm sínum á komandi mánuðum enda stefnir hann á hvorki meira né minna en 39 hlaup það sem eftir lifir árs.

fim         30.3.2017            Hlaupasería FH og Atlantsolíu - mars nr.3  
lau          1.4.2017             39. Flóahlaupið
fim         20.4.2017            Víðavangshlaup ÍR     
lau          22.4.2017           Vormaraþon Félags maraþonhlaupara         
mán       1.5.2017              Jötunnhlaupið                  
fim         4.5.2017              Icelandair hlaupið                  
lau          6.5.2017             Neshlaupið                    
fim         11.5.2017            Forgjafarhlaup nr. 1            
lau          20.5.2017           Kópavogsmaraþon                  
fim         25.5.2017            Ölkelduhlaupið                    
lau          3.6.2017             Mývatnsmaraþonið                            
mán       5.6.2017              Hvítasunnuhlaup Hauka                           
fös         23.6.2017            Miðnæturhlaup Suzuki               
lau          24.6.2017           Bláskógaskokk HSK                    
lau          1.7.2017             Snæfellsjökulshlaupið         
mið        5.7.2017              Ármannshlaup Eimskips            
fös         14.7.2017            Hlaupah. á Vestfjörðum - Arnarneshl. 
sun        16.7.2017            Hlaupah. á Vestfjörðum - Vesturg/Þríþraut             
mið        2.8.2017              Adidas Boost hlaupið - 10km                    
fim         10.8.2017            Vatnsm,.hlaupið - 5km eða Hreppsl.hlaupið            
lau          12.8.2017           Brúarhlaupið          
lau          19.8.2017           Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka                 
fim         24.8.2017            Fossvogshlaup Hleðslu                  
lau          26.8.2017           Hvalfj.hlaupið eða Tindahlaupið 3tinda               
mið        30.8.2017            Ljósanæturhlaup Lífstíls            
lau          2.9.2017             Vestmannaeyjahlaup                     
sun        10.9.2017            Globeathon           
þri          19.9.2017            Flensborgarhlaupið                   
sun        24.9.2017            Rock ''n'' Roll de Montréal Marathon
lau          30.9.2017           Víðav.hl.röð Newton Running og Framfara nr. 1        
sun        15.10.2017          Rock ''n'' Roll Lisbon Marathon              
fim         19.10.2017          Flandrasprettur 2017-2018 nr. 1                 
lau          21.10.2017         Haustmaraþon Félags maraþonhlaupara             
fim         9.11.2017            Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 2                
sun        10.12.2017           Kaldárhlaupið
fim         14.12.2017          Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 3            
mán       26.12.2017          Kirkjuhlaup Hauka                       
sun        31.12.2017          Gamlárshlaup ÍR

Skipuleggur þú jafnan hlaupasumarið þitt með miklum fyrirvara?
Nei og kannski jú, svona miðað við hlaupalistann minn. Það er þá helst ef að hlaupahópurinn minn hefur planað að fara í eitthvað sérstakt hlaup t.d. erlendis.

Eru einhver sérstök hlaup sem þú sækir í?
Nei, ég er til í að prófa allt.

Fyrir hvaða hlaupi ertu spenntastur (af hverju)?
Hlaupunum erlendis og t.d. Reykjavíkurmaraþon og Hvítasunnuhlaupi Hauka, þar er bara svo mikil stemming.

Ertu fastagestur í mörgum þessara hlaupa?í
Já, það er bara ekki hægt að missa af sumum hlaupunum.

Markmið fyrir sumarið?
PB í öllum vegalengdum.

Hvern skorar þú á til að opinbera „Hlaupasumarið sitt?
Gunnar Viðar Gunnarsson úr Flandra.

Skipuleggur þú jafnan hlaupasumarið þitt með miklum fyrirvara?
Nei og kannski jú, svona miðað við hlaupalistann minn. Það er þá helst ef að hlaupahópurinn minn hefur planað að fara í eitthvað sérstakt hlaup t.d. erlendis.

Eru einhver sérstök hlaup sem þú sækir í?
Nei, ég er til í að prófa allt.

Fyrir hvaða hlaupi ertu spenntastur (af hverju)?
Hlaupunum erlendis og t.d. Reykjavíkurmaraþon og Hvítasunnuhlaupi Hauka, þar er bara svo mikil stemming.

Ertu fastagestur í mörgum þessara hlaupa?í
Já, það er bara ekki hægt að missa af sumum hlaupunum.

Markmið fyrir sumarið?
PB í öllum vegalengdum.

Hvern skorar þú á til að opinbera „Hlaupasumarið sitt?
Gunnar Viðar Gunnarsson úr Flandra.