Hlaupasumarið mitt: Gunnar V. Gunnarsson úr Flandra með 46 hlaup á blaði

birt 09. apríl 2017

Gunnar Viðar Gunnarsson, 48 ára húsasmiður úr Hlaupahópnum Flandra er næstur í röðinni til að opinbera hlaupasumarið sitt á hlaup.is. Það var Arnar Karlsson úr Hlaupahópi FH sem skoraði á Gunnar í síðasta pistli.

Byrjaði að hlaupa 43 ára
Gunnar byrjaði að hlaupa reglulega í ársbyrjun 2012. Á þeim tíma vann hann við virkjunarframkvæmdir á Grænlandi og var ekki sáttur við hvernig líkamlegt ástand hans var að þróast. Tilgangurinn með hlaupunum var fyrst og fremst að léttast og bæta heilsuna, en fljótlega var ljóst að hlaupabakterían væri komin til að vera.

Fyrsta maraþon Gunnars var Mývatnsmaraþonið 2013 og þá um haustið lauk Grænlandstímabilinu. Vorið 2014 var Gunnar kominn á fulla ferð með Hlaupahópnum Flandra í Borgarnesi og hefur ekki slegið af síðan ef frá eru taldar frátafir vegna meiðsla. Maraþonin eru orðin sex talsins og þegar þetta er skrifað hefur Gunnar lokið samtals 25 10 km keppnishlaupum á þeim stutta tíma sem liðinn er frá upphafi ferilsins.

fim 20.4.2017

Víðavangshlaup ÍR - Powerade sumarhlaupin

lau 22.4.2017

Vormaraþon Félags maraþonhlaupara

mán 1.5.2017

Jötunnhlaupið

fim 4.5.2017

Icelandair hlaupið 

lau 13.5.2017

Kópavogsmaraþonið

lau 20.5.2017

Fjallvegahlaupabókarhlaup yfir Svínaskarð

lau 27.5.2017

Árbæjarhlaup Fylkis

mán 5.6.2017

Hvítasunnuhlaup Hauka

lau 10.6.2017

Gullspretturinn

sun 11.6.2017

Fjallvegahlaup: Skeggaxlarskarð í Dölum

mán 12.6.2017

Álafosshlaupið

fös 16.6.2017

Komaso hlaupið - Utanvegahlaup í Heiðmörk (Elliðabæ)

lau 17.6.2017

Þrístrendingur

fös 23.6.2017

Miðnæturhlaup Suzuki - Powerade sumarhlaupin

lau 1.7.2017

Hamingjuhlaupið

mið 5.7.2017

Ármannshlaup Eimskips

fim 6.7.2017

Akureyrarhlaup Íslenskra verðbréfa og Átaks

lau 8.7.2017

Komaso "Trail to 101"

lau 15.7.2017

Laugavegshlaupið

lau 22.7.2017

Dyrfjallahlaupið

mán 24.7.2017

Fjallvegahlaup: Víkurheiði og Dys

mán 24.7.2017

Fjallvegahlaup: Hrafnaskörð

mið 2.8.2017

Adidas Boost hlaupið

lau 5.8.2017

Barðsneshlaupið

fim 10.8.2017

Hreppslaugarhlaupið

lau 12.8.2017

Strandarhlaupið (Þróttur Vogum)

lau 19.8.2017

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka - Powerade Sumarhlaupin

fim 24.8.2017

Fossvogshlaup Hleðslu

lau 26.8.2017

Tindahlaup Mosfellsbæjar

mið 30.8.2017

Ljósanæturhlaup Lífstíls

lau 2.9.2017

Vestmannaeyjahlaup

sun 10.9.2017

Globeathon

þri 19.9.2017

Flensborgarhlaupið

sun 24.9.2017

Hjartadagshlaupið

Sun 8.10.2017

Þriggja landa maraþonið, Bregenz

fim 12.10.2017

Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 1

fim 19.10.2017

Flandrasprettur 2017-2018 nr. 1

lau 21.10.2017

Haustmaraþon Félags maraþonhlaupara

fim 9.11.2017

Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 2

fim 16.11.2017

Flandrasprettur 2017-2018 nr. 2

lau 25.11.2017

Vetrarhlaup UFA 2017-2018 nr. 2

sun 10.12.2017

Kaldárhlaupið

fim 14.12.2017

Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 3

fim 21.12.2017

Flandrasprettur 2017-2018 nr. 3

sun 31.12.2017

Gamlárshlaup ÍR

Skipuleggur þú jafnan hlaupasumarið þitt með miklum fyrirvara?
Já, ég skipulegg það með góðum fyrirvara. Sum hlaupin eru það langt í burtu að maður þarf að huga að gistingu og öðru skipulagi tímanlega.

Eru einhver sérstök hlaup sem þú sækir í?
Utanvegahlaupin eru skemmtilegust, en ég fer líka í mörg götuhlaup þar sem ég von á skemmtilegri keppni og góðum félagsskap.

Fyrir hvaða hlaupi ertu spenntastur?
Laugavegurinn er númer eitt, alla vega í sumar. Krefjandi og skemmtilegt hlaup!

Ertu fastagestur í mörgum þessara hlaupa?
Ég reyni að mæta á hverju ári t.d. í Víðavangshlaup ÍR, Haust- og Vormaraþonin og Reykjavíkurmaraþon, en reyndar eru ekki svo ýkja mörg ár síðan ég byrjaði að hlaupa.

Markmið fyrir sumarið?
PB í öllum vegalengdum.

Hvern skorar þú á til að opinbera „Hlaupasumarið sitt?
Sonju Sif Jóhannsdóttur í UFA/Eyrarskokki.