Nú er að hefja göngu sína nýr liður á hlaup.is sem nefnist Hlaupasumarið mitt. Liðurinn felst í því að fá hlaupara til að opinbera hlaupaplanið sitt fyrir komandi tímabil, gefa upp hvaða hlaupum viðkomandi hyggst taka þátt í ásamt því að svara örfáum spurningum. Þannig má segja að þátttakendur í Hlaupasumarið setji á sig örlitla jákvæða pressu með því að opinbera markmið sín. En um leið fylla þeir vonandi aðra hlaupara innblæstri og gefa öðrum skemmtilegar hugmyndir fyrir hlaupasumarið. Við hvetjum hlaupara til að senda okkur ábendinga um skemmtilega viðmælendur á netfangið heimir@hlaup.is. Eins og alltaf leggjum við áherslu á að fá ólíka hlaupara með mismunandi markmið til að taka þátt í þessum skemmtilega lið, enginn þarf að vera feiminn til að opinbera lítil sem stór markmið fyrir hinu fjölskrúðuga íslenska hlaupasamfélagi og markmiðið má vera eitt eða fleiri hlaup.
Vigfús Eyjólfsson, fimmtugur hlaupari úr Frískum Flóamönnum á Selfossi ætlar að ríða á vaðið og opinbera hlaupasumarið sitt. Hlaupasumarið hans er ansi þéttbókað og það finnast vart margir hlauparar á Íslandi sem hyggjast taka þátt í fleiri hlaupum en Vigfús þetta árið.
Skipuleggur þú jafnan hlaupasumarið þitt með miklum fyrirvara?
Ég ákveð lengsta hlaup sumarsins yfirleitt veturinn áður og hitt raðast síðan í kring.
Eru einhver sérstök hlaup sem þú sækir í?
Nei ég sækist bæði utanvega og götuhlaup.
Fyrir hvaða hlaupi ertu spenntastur?
Utanvegahlaupunum. Það verðurgaman að sjá hvort og þá hvernig styrktaræfingar vetrarins skila sér.
Ertu fastagestur í mörgum þessara hlaupa?
Já, ég er með svipað hlaupaplan frá ári til árs
Markmið fyrir sumarið?
Að klára Laugaveginn og vera í fínu standi alla leið.
Hvern viltu skora á að opinbera Hlaupasumarið sitt?
Arnar Karlsson úr Hlaupahóp FH
Hlaupasumar Vigfúsar Eyjólfssonar
fim 9.3.2017 Powerade Vetrarhlaup 2016-2017 nr.6 10 km
lau 1.4.2017 39. Flóahlaupið 10 km
fim 20.4 2017 Kambahlaupið 19 km
mán 1.5.2017 Jötunnhlaupið 10 km
lau 20.5.2017 Kópavogsmaraþon 21,1 km
fim 25.5 2017 Ölkelduhlaupið 24 km
mán 5.6.2017 Hvítasunnuhlaup Hauka 22 km
sun 18.6.2017 Mt. Esja Ultra - Mt. Esja ofurhlaup 14 km
lau 24.6.2017 Bláskógaskokk HSK 16,1 km
lau 1.7.2017 Snæfellsjökulshlaupið 22 km
lau 8.7.2017 Komaso "Trail to 101" 21 km
lau 15.7.2017 Laugavegshlaupið 55 km
lau 12.8.2017 Brúarhlaup á Selfossi 10 km
lau 19.8.2017 Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka - Powerade Sumarhlaupin 21,1 km
lau 2.9.2017 Vestmannaeyjahlaup 5 km/10 km/21,1 km
sun 24.9.2017 Hjartadagshlaupið 5 km/10 km
fim 12.10.2017 Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 1 10 km
lau 21.10.2017 Haustmaraþon Félags maraþonhlaupara 21,1 km
fim 9.11.2017 Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 2 10 km
sun 10.12.2017 Kaldárhlaupið 9,7 km
fim 14.12.2017 Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 3 10 km
sun 31.12.2017 Gamlárshlaup ÍR 10 km