Hlaupasumarið mitt: Vigfús Eyjólfsson úr Frískum Flóamönnum

birt 20. mars 2017

Nú er að hefja göngu sína nýr liður á hlaup.is sem nefnist Hlaupasumarið mitt. Liðurinn felst í því að fá hlaupara til að opinbera hlaupaplanið sitt fyrir komandi tímabil, gefa upp hvaða hlaupum viðkomandi hyggst taka þátt í ásamt því að svara örfáum spurningum. Þannig má segja að þátttakendur í Hlaupasumarið setji á sig örlitla jákvæða pressu með því að opinbera markmið sín. En um leið fylla þeir vonandi aðra hlaupara innblæstri og gefa öðrum skemmtilegar hugmyndir fyrir hlaupasumarið. Við hvetjum hlaupara til að senda okkur ábendinga um skemmtilega viðmælendur á netfangið heimir@hlaup.is. Eins og alltaf leggjum við áherslu á að fá ólíka hlaupara með mismunandi markmið til að taka þátt í þessum skemmtilega lið, enginn þarf að vera feiminn til að opinbera lítil sem stór markmið fyrir hinu fjölskrúðuga íslenska hlaupasamfélagi og markmiðið má vera eitt eða fleiri hlaup.

Vigfús Eyjólfsson, fimmtugur hlaupari úr Frískum Flóamönnum á Selfossi ætlar að ríða á vaðið og opinbera hlaupasumarið sitt. Hlaupasumarið hans er ansi þéttbókað og það finnast vart margir hlauparar á Íslandi sem hyggjast taka þátt í fleiri hlaupum en Vigfús þetta árið.

Skipuleggur þú jafnan hlaupasumarið þitt með miklum fyrirvara?
Ég ákveð lengsta hlaup sumarsins yfirleitt veturinn áður og hitt raðast síðan í kring.

Eru einhver sérstök hlaup sem þú sækir í?
Nei ég sækist bæði utanvega og götuhlaup.

Fyrir hvaða hlaupi ertu spenntastur?
Utanvegahlaupunum. Það verðurgaman að sjá hvort og þá hvernig styrktaræfingar vetrarins skila sér.

Ertu fastagestur í mörgum þessara hlaupa?
Já, ég er með svipað hlaupaplan frá ári til árs

Markmið fyrir sumarið?
Að klára Laugaveginn og vera í fínu standi alla leið.


Hvern viltu skora á að opinbera Hlaupasumarið sitt?
Arnar Karlsson úr Hlaupahóp FH

Hlaupasumar Vigfúsar Eyjólfssonar

fim 9.3.2017       Powerade Vetrarhlaup 2016-2017 nr.6 10 km
lau 1.4.2017       39. Flóahlaupið 10 km 
fim 20.4 2017     Kambahlaupið 19 km
mán 1.5.2017    Jötunnhlaupið 10 km
lau 20.5.2017     Kópavogsmaraþon 21,1 km
fim 25.5 2017     Ölkelduhlaupið 24 km
mán 5.6.2017    Hvítasunnuhlaup Hauka 22 km
sun 18.6.2017    Mt. Esja Ultra - Mt. Esja ofurhlaup 14 km
lau 24.6.2017     Bláskógaskokk HSK 16,1 km
lau 1.7.2017       Snæfellsjökulshlaupið 22 km
lau 8.7.2017       Komaso "Trail to 101" 21 km
lau 15.7.2017     Laugavegshlaupið 55 km
lau 12.8.2017     Brúarhlaup á Selfossi 10 km
lau 19.8.2017     Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka - Powerade Sumarhlaupin 21,1 km
lau 2.9.2017       Vestmannaeyjahlaup 5 km/10 km/21,1 km
sun 24.9.2017    Hjartadagshlaupið 5 km/10 km
fim 12.10.2017  Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 1 10 km
lau 21.10.2017   Haustmaraþon Félags maraþonhlaupara 21,1 km
fim 9.11.2017     Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 2 10 km
sun 10.12.2017  Kaldárhlaupið 9,7 km
fim 14.12.2017  Powerade vetrarhlaupin 2017-2018 nr. 3 10 km
sun 31.12.2017  Gamlárshlaup ÍR 10 km