Bakgarðshlaup í Heiðmörk hófst laugardaginn 19. september, þar sem hlaupinn er hringur í Heiðomörkinni.
Hlaup.is var á staðnum og tók vídeó af hlaupurum á fyrsta hring eftir 3 km og má sjá það hér fyrir neðan. Við tókum einnig myndir af hlaupurunum á sama stað. Vissir þú að með því að skrá þig inn á Mínar síður hlaup.is með rafrænum skilríkjum, þá getur þú merkt allar myndir af þér og safnað á prófílinn þinn? Þú getur einnig styrkt hlaup.is með því að kaupa mynd.
