Gullspretturinn var haldinn við frábærar aðstæður þann 13. júní, en hlaupinn er 8,5 km hringur í kringum Laugarvatn, þar sem slóðin liggur á bakkanum og þvera þarf nokkrar ár sem renna í vatnið. Boðið er upp á mjög flata braut í 5 km og 10 km sem eru löglega mældar.
Hlaup.is var á staðnum og tók vídeó af hlaupurum má sjá þau hér fyrir neðan. Við tókum einnig myndir af hlaupurunum á sama stað. Vissir þú að með því að skrá þig inn á Mínar síður hlaup.is með rafrænum skilríkjum, þá getur þú merkt allar myndir af þér og safnað á prófílinn þinn? Þú getur einnig styrkt hlaup.is með því að kaupa mynd.
Úrslitin eru líka væntanleg á hlaup.is og ef þú tókst þátt þá getur þú gefið hlaupinu einkunn með því að skrá þig inn á Mínar síður hlaup.is og samþykkja tímann í hlaupinu.
Hlauparar eftir 1 km
Hlauparar eftir 5,5 km - Fyrri hópur
Hlauparar eftir 5,5 km - Seinni hópur
