Adidas Boost, eitt þekktasta og vinsælasta 10 kílómetra götuhlaup landsins, fer fram miðvikudaginn 29. júlí. Hlaupið verður nú haldið í tólfta sinn og markar jafnframt upphaf nýs kafla þegar Víkingamótin taka við framkvæmd þess.
Sjá nánari upplýsingar um hlaupið hér á hlaup.is.
Frá því Adidas Boost var fyrst haldið árið 2015 hefur hlaupið skapað sér sterka stöðu meðal íslenskra hlaupara. Frumkvöðull hlaupsins er hlauparinn og hlaupaþjálfarinn Ívar Trausti Jósafatsson, sem byggði viðburðinn upp af miklum metnaði og gerði hann að einum vinsælasta 10 km hlaupaviðburði landsins. Brautin um Elliðaárdal hefur verið þekkt fyrir að vera hröð og þar hafa ótal hlauparar bætt sín persónulegu met.
Saga hlaupsins er jafnframt samofin afrekum margra af fremstu hlaupurum landsins. Arnar Pétursson er sigursælasti keppandi Adidas Boost frá upphafi með sjö sigra og mótið hefur í gegnum árin laðað að sér sterkt úrval af afreks- og almenningshlaupurum. Árið 2022 var Adidas Boost jafnframt valið annað besta götuhlaup ársins í kosningu lesenda Hlaup.is.
Þótt nýr framkvæmdaraðili taki nú við verður áherslan áfram á að varðveita þá sérstöðu sem hlaupið hefur byggt upp á undanförnum ellefu árum. Adidas Boost verður framvegis hluti af Víkingamótaröðinni ásamt Hengill Ultra, Reykjavík Trail og Garmin Eldslóðinni, en markmiðið er að byggja áfram á sterkri arfleifð hlaupsins og þróa það enn frekar til framtíðar.
Samstarf Hlaup.is og Adidas Boost heldur áfram líkt og undanfarin ár. Hlaup.is mun fylgjast með hlaupinu, fjalla um úrslit þess og miðla efni frá viðburðinum til hlaupasamfélagsins.
Veðurspáin lítur einstaklega vel út fyrir miðvikudagskvöldið og allt stefnir í frábærar aðstæður til hlaupa. Adidas Boost hefur um árabil verið þekkt sem hlaup þar sem persónulegu metin falla og því er tilvalið tækifæri fyrir hlaupara að láta reyna á sig á einni hraðustu 10 km braut landsins.
Hlaup.is hvetur alla hlaupara, jafnt vana sem nýja, til að vera með og taka þátt í þessum öfluga viðburði. Skráning stendur yfir á vikingamot.is.
