birt 09. apríl 2004

"Laaanghlauparinn" Ágúst Kvaran lauk 100 km hlaupi í Winschoten í Hollandi þann 12. september 1998 á tímanum 8.43'08'', sem svarar til 5'13'' per km eða 52'19'' per 10 km jafnaðarhraða. Fyrstu 42,2 km var lokið á um 3.30' og fyrstu 50 km á um 4.10'. Á hlaupadaginn var talsverð rigning og ca. 12°C hiti, en nánast logn. Hlaupnir voru 10x10 km hringir innan bæjarmarka Winschoten. "Winschoten 100 km" þetta árið var jafnframt heimsmeistarakeppni öldunga (40 ára og eldri) í 100 km og einnig fór fram 10x10 km boðhlaup. Þá fór jafnframt fram (heimsmeistara)keppni landsliða. Í 10x10 keppninni tóku ca. 2.000 manns þátt í boðhlaupinu.

100 km SOLO keppnin: 176 voru skráðir til keppni í 100 km SOLO, þar af luku 142 keppni, þar af náðu 96 að ljúka hlaupinu fyrir 14 klst tímamörk, en eftir það var tímatöku lokið og einungis skráð röð lúkningar. Sigurvegari í heild var Pólverji (A. Magier, M20) sem lauk hlaupinu á tæpum 7 klst (6.59'51'') (og hringaði Ágúst Kvaran einu sinni!). Heimsmeistarakeppni öldunga í karlaflokki varð Steve Moore frá Bretlandi (7:05'11'').

Heimsmeistari öldunga í kvennaflokki varð Eleanor Robinson frá Bretlandi, sem er heimsmethafi í 1000 km hlaupi! Hún lauk 100 km hlaupinu á tímanum 8.19'57'', 51 árs gömul. Landslið Breta bar sigur úr bítum í 100 km SOLO. Ágúst Kvaran lenti í 35 sæti í heild og í 10 sæti í aldursflokknum M45.