Ævintýrahlaup (keppni) á Grænlandi

birt 23. febrúar 2005

Hlaup.is hefur frétt að eitt íslenskt lið hafi skráð sig í ævintýrakeppnina "Arctic Team Challenge" sem fram fer í júlí í sumar á Grænlandi. Þessi keppni tekur 5 daga og er hlaupið, klifið, hjólað og róið til þess að komast í mark.

Það eru Trausti Valdimarsson, Pétur Helgason, Erlendur Birgisson og Pétur Ásbjörnsson sem mynda þetta íslenska lið.

Nánari upplýsingar er hægt að finna á vefsíðu hlaupsins: http://www.atc.gl.