Afrekaskráin 2004 er komin út. Tilboð til Laugavegsfara.

birt 14. júlí 2004

Afrekaskrá í lengri hlaupum frá upphafi til 1. júní 2004 er komin út. Tekið hefur saman Sigurður P. Sigmundsson.  Sjáið nánari upplýsingar undir Fróðleikur/Vörukynningar/Afrekaskrá. Þar eru sýnishorn af blaðsíðum úr bókinni sem sýna framsetninguna.

Í þessari viku, vikunni fyrir Laugaveginn er 25% afsláttur á afrekaskránni fyrir Laugarvegsfara. Sigurður P. Sigmundsson verður milli kl. 14 og 17 á föstudaginn á skrifstofu ÍBR þar sem hægt verður að nálgast skrána um leið og þátttakendur ná í keppnisgögnin.

Einnig er hægt að senda inn pöntun á eftirfarandi: sigurdur.p.sigmundsson@vmst.is.