Arnarneshlaup í stað Óshlíðarhlaups á Hlaupahátíð

birt 02. júní 2015

Óshlíðarhlaupinu á Hlaupahátíð á Hlaupahátíð á Vestfjörðum hefur verið aflýst og Arnarneshlaup sett á í staðinn. Eftir að hafa skoðað og metið aðstæður í Óshlíð hafa aðstandendur Hlaupahátíðar á Vestfjörðum tekið þá ákvörðun að aflýsa Óshlíðarhlaupinu. Aðstæður á hlaupaleiðinni eru þannig að aðstandendur treysta sér ekki til að tryggja öryggi keppenda á leiðinni.Vegurinn hefur látið mikið á sjá í vetur, er svo komið að á nokkrum stöðum á leiðinni er lítið pláss fyrir hlaupara og því komast aðstandendur að áðurnefndri niðurstöðu. Áfram er þó hægt að hlaupa hlíðina og hvetjum við hlaupara til að halda áfram að hlaupa þessa frábæru leið.


Skoða Arnarneshlaup á stærra korti

Í staðinn fyrir Óshlíðarhlaup kynnir Hlaupahátíð á Vestfjörðum nýtt hlaup, Arnarneshlaupið. Þar verður hægt að velja um 10 km og 21,1 km en hlaupið verður haldið í fyrsta sinn föstudaginn, 17. júlí. Hálfmaraþonið mun hefjast í Súðavík klukkan 20 en 10 km hlaupið á Arnarnesinu klukkan 20.40. Bæði hlaupin munu enda á Silfurtorgi líkt og Óshlíðarhlaupið gerði. FRÍ mun mæla vegalengdirnar þannig að hlaupin verði lögleg.

Skráning á Hlaupahátíðina hefst í vikunni og hvetja aðstandendur hlaupara og aðra til að taka þátt í flottri hátíð en skráning fer fram á hlaupahatid.is.