Flottir hlauparar í Salomon Hengill Ultra

uppfært 25. ágúst 2020

Þeir eru ansi öflugir hlaupararnir sem þegar hafa skráð í í 100 km hlaupið í  Salomon Hengill Ultra sem fram fer í Hveragerði helgina 5. til 6. júní næstkomandi. Listinn yfir hlauparana er nánast eins og listi yfir okkar allra bestu hlaupara. Þegar þetta er skrifað eru 35 hlauparar skráðir í 100 km hlaupið.

Hér að neðan stiklar Einar Bárðarson skipuleggjandi hlaupsins á stóru um þátttakendur í 100 km hlaupinu :

"Örvar Steingrímsson, margreyndur landsliðsmaður í utanvegahlaupum.  Var í landsliði Íslands 2015,2016 og 2019.  Sigraði Laugaveginn 2013 og varð annar í fyrra.  Einn af bestu utanvegahlaupurum landsins.

Ásta Björk Guðmundsdóttir er með efnilegri utanvegahlaupurum landsins. Hefur bætt sig gríðarlega á undanförum árum. Síðasta haust kláraði Ásta 100 km í UTLO 2019 á Ítalíu, kláraði 65 km í Trans Gran Canaria í vetur á Canary. Virkilega sterk.

Birgir Már Vigfússon, hefur bætt sig gríðarlega á undanförnum árum. Varð þriðji á Laugaveginum 2019 og bætti tímann sinn verulega. Þá fór hann undir þrjá tíma í maraþoni sama ár. Er mjög reyndur utanvegahlaupari og kláraði meðal annars TDS hlaupið í Chamoix 2019. 

Brynja Baldursdóttir, mjög sterk og hefur æft vel í vetur. Verður spennandi að sjá hvað hún gerir í 100 km. Hún kláraði 100 km í UTLO á Ítalíu 2019. 

Daníel Reynisson, landsliðsmaður í utanvegahlaupum 2017 og 2018. Gífurlega sterkur hlaupari sem verður spennandi að fylgjast með í Hengill Ultra.

Síðan má nefna fleiri t.d. Gunnar Júlíusson sem er mjög reyndur utanvegahlaupari, Björn Rúnar Lúðvíksson en hann er hokinn af reynslu í utanvegahlaupum bæði innanlands og erlendis. Tómas Beck, virkilega sterkur og í „bætingarham", Þorleifur Þorleifsson og Adam Komorowski sem fór 25 km í fyrra."

Það stefnir því greinilega í mikla hlaupaveislu í Hveragerði og nærsveitum fyrstu helgina í júní þegar Salomon Hengill Ultra fer fram. Það er um að gera fyrir hlaupara að tryggja sér skráningu fyrr en seinna enda ekki langt í að fullt verði í hlaupin. Þess má geta að fimm vegalengdir eru í boði, 5 km, 10 km, 25 km, 50 km og 100 km sem er lengsta utanvega hlaup á Íslandi. Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á 100 km liðakeppni sem er skipt upp þannig að fjórir keppendur hlaupa 25 km hringinn. Nánari upplýsingar á hlaup.is.