birt 23. maí 2004

Hefur þú áhuga á að skrifa fréttir inn á hlaup.is ? Ef svo er þá er Hlaupasíðan að leita að nokkrum aðilum sem gætu sett inn fréttir. Hugmyndin er að fá fréttir frá skokkhópum út um allt land, hvað er í gangi, hvað stendur til, fréttir af fólkinu í hópunum og hugsanlega líka fréttir erlendis frá og allt þarna á milli. Ef þú hefur áhuga á þessu hafðu þá samband við umsjónarmann Hlaupasíðunnar torfi@hlaup.is. Þú getur líka hringt í síma 693-1004 eftir kl. 18:00 virka daga og hvenær sem er um helgar.