Gunnlaugur lýkur 100 km hlaupi á ágætum tíma

birt 29. ágúst 2004

Gunnlaugur Júlíusson, sem tók þátt í 100 km ofurhlaupinu á Borgundarhólmi í Danmörku, lauk hlaupinu á tímanum 10:27:36. Gunnlaugur var í 7. sæti karla en 8. sæti í heildina. Alls luku 18 keppendur við hlaupið og Gunnlaugur því fyrir ofan miðju. Hlaup.is óskar Gunnlaugi til hamingju með að komast í hóp annarra íslenskra 100 km ofurhlaupara.